Erlent

Rúmlega 40 ára aldursmunur á parinu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Auðkýfingurinn George Soros ætlar að gifta sig.
Auðkýfingurinn George Soros ætlar að gifta sig. mynd/ afp.
Auðjöfurinn og fjárfestirinn George Soros fagnaði áttatíu og tveggja ára afmæli um helgina með því að bjóða nánustu vinum og ættingjum til veislu. Í veislunni tilkynntu hann og unnusta hans að þau hyggjast gifta sig. Unnustan heitir Tamiko Bolton, en hún er fjörutíu og tveimur árum yngri en hann. Soros og Bolton hafa verið par frá árinu 2008. Þetta er þriðja hjónaband Soros og annað hjónaband Bolton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×