Fótbolti

Noregur, Svíþjóð og Danmörk töpuðu öll

Damiao fagnar gegn Svíum í kvöld.
Damiao fagnar gegn Svíum í kvöld.
Norðmenn, sem verða fyrstu andstæðingar Íslands í undankeppni HM, töpuðu á heimavelli í kvöld. Þá fengu þeir á sig þrjú mörk gegn Grikkjum sem eru þekktir fyrir flest annað en góðan sóknarleik.

Svíar steinlágu svo gegn Brössum en líklega vekur mesta athygli sigur Slóvaka gegn Dönum á Parken.

Úrslit:

Noregur-Grikkland 2-3

0-1 Vasilis Torosidis (7.), 0-2 Kyriakos Papadopoulos (11.), 1-2 Brede Hangeland (13.), 1-3 Konstantinos Mitroglou (56.).

Svíþjóð-Brasilía 0-3

0-1 Leandro Damiao (32.), 0-2 Pato (84.), 0-3 Pato, víti (86.)

Danmörk-Slóvakía 1-3

1-0 Tobias Mikkelsen (22.), 1-1 Martin Jakubko (64.), 1-2 Marek Hamsik (72.), 1-3 Lubomir Guldan (83.)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×