Erlent

IKEA stefnir á hótelrekstur

Mynd/Stefán Karlsson
Sænski húsgagnaframleiðandinn IKEA stefnir nú á hótelrekstur. Talsmaður fyrirtækisins sagði sænskum fréttamiðlum í gær að markmið IKEA væri að reka rúmlega hundrað hótel í Evrópu.

Áætlaður kostnaður við verkefnið nemur rúmlega hundrað fjörutíu og átta milljörðum króna. Talið er að fyrstu hótelin muni rísa í Þýskalandi, Belgíu og Hollandi.

Ódýrt verður að gista á þessum hótelum að sögn talsmannsins en stefnt er að því þau verði miðsvæðis í helstu borgum Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×