Við spilum í úrvalsdeildinni 6. ágúst 2012 21:30 Jón Elías Gunnlaugsson á æskuslóðirnar í Ölvisholti og komust að því að hann hefur sett sér háleitt framtíðarmarkmið: Að búa til besta bjór í heimi. mynd/vilhelm
Á dögunum var Lava frá Brugghúsinu í Ölvisholti valinn besti bjórinn í flokki reyktra bjórtegunda á Opna bandaríska bjórmótinu. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir og Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari heimsóttu bruggmeistarann Jón Elías Gunnlaugsson á æskuslóðirnar í Ölvisholti og komust að því að hann hefur sett sér háleitt framtíðarmarkmið: Að búa til besta bjór í heimi. Nýlega vann bjórinn Lava, hinn biksvarti Imperial Stout frá Ölvisholti, til verðlauna í Opna bandaríska bjórmótinu (U.S. Open Beer Championship), þar sem hann var valinn besti bjórinn í flokknum Smoked/rauchbeer. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir heimsótti bruggmeistarann Jón Elías Gunnlaugsson á æskuslóðirnar, þar sem hann bæði starfar og býr með fjölskyldu sinni í sveitasælunni. Lava hefur stimplað sig vel inn í Bandaríkjunum, þar sem hann er fáanlegur í öllum fylkjum. „Stout er eins og kaffi bjórsins," útskýrir bruggmeistarinn Jón Elías Gunnlaugsson, sem tekur blaðamanni og ljósmyndara Fréttablaðsins opnum örmum og lóðsar þá af ánægju um brugghúsið. „Það er búið að brenna byggið, sem þýðir að við fáum engan sykur úr því heldur bara bragð, lit og fyllingu. Lava er 9,4 prósent og hann á ekkert sameiginlegt með venjulegum bjór. Við erum frekar að keppa við borðvín heldur en „mainstream" bjór með honum." Bruggverksmiðjan er í gamalli hlöðu á Ölvisholti þar sem Jón sjálfur ólst upp. Hlaðan minnir þó lítið á hefðbundinn búskap í dag, en í stað búfénaðar á básum eru þar í dag stærðarinnar tankar sem geyma bjór í tonnavís. Uppi á hillu má sjá sýnishorn af þeim bjórtegundum sem framleiddar eru í Ölvisholti. Þar er starfað eftir hugmyndafræði örbrugghúsa, sem gengur út á að framleiða metnaðarfyllri bjór en gengur og gerist. Sjálfur er Jón viss um að það hafi tekist. "Okkar mottó er einfaldlega að búa til besta bjór í heimi. Ég hef grun um að við séum orðin, eða í það minnsta að verða, stærsti útflytjandi á bjór á landinu."Æskuslóðirnar fegurstar Það var árið 2007 sem Jón lét þann gamla draum verða að veruleika að koma á fót bruggverksmiðju í Ölvisholti. Það gerði hann í samvinnu við nágranna sinn, Bjarna Einarsson, eggjabóndann af næsta bæ. Hugmyndin var góðra gjalda verð en það var tímasetningin ekki. Þetta var "korteri fyrir hrun" eins og Jón orðar það. Algjör forsendubrestur varð á rekstrinum eftir bankahrunið og svo fór að Landsbankinn tók starfsemina yfir. Í fyrravor komu hins vegar nýir fjárfestar að rekstri brugghússins og hjólin tóku að snúast að nýju. Í dag eru framleiddar um 600 þúsund flöskur af bjór í Ölvisholti og starfsemin blómstrar. Margir myndu eflaust öfunda Jón af starfsumhverfi sínu. Hann þarf ekki að fara nema nokkra metra að heiman til að sækja vinnu sína, bruggar þar bjór fjarri skarkala heimsins og á alltaf einn kaldan innan seilingar. Hann tekur undir að starfsumhverfið sé gott, en tekur fram að hann láti bjórinn alveg eiga sig á vinnutíma. Við hlið Jóns í brugghúsinu starfar konan hans, Þórhildur Rúnarsdóttir. Þau hjónin keyptu jörðina af foreldrum Jóns árið 2006 og fluttust á bæinn. Þau eiga þrjú börn, sem sækja sína leikskóla og skóla og njóta frjálsræðis sveitasælunnar þess á milli. „Það er dásamlegt að búa svona á æskuslóðum," segir Jón í einlægni. „Ég held það sé þannig með flesta að þeim þyki staðurinn þar sem þeir alast upp sá fallegasti í heimi. Það er svoleiðis með mig. Við lifum ósköp ljúfu lífi hérna."Ímynd Íslands mikilvæg Bygg og malt sem notað er til framleiðslu bjórsins frá Ölvisholti er innflutt. Vatnið er hins vegar að sjálfsögðu íslenskt og algjört lykilhráefni að sögn Jóns. Hann segir ímynd Íslands sem hreins og ósnerts lands lykilatriði í markaðssetningu erlendis. „Við vitum að við erum með pottþétt, hreint og gott vatn í vörunni, sem myndar 90 prósent af henni. Ímynd Íslands um allan heim er líka hreinleiki og við getum alveg staðið undir henni." Það er ekki bara ímyndin sem hefur hjálpað Ölvisholti í markaðssetningunni erlendis, heldur hafa náttúruöflin líka verið með brugghúsinu í liði. Það er engin tilviljun hversu vel Lava selst í Bandaríkjunum, en miðinn á flöskunni sýnir eldspúandi Heklu, sem er einmitt sýn sem hefur alloft birst heimilisfólki að Ölvisholti frá bæjardyrunum. Bandaríkjamönnum er eldgosið í Eyjafjallajökli og áhrif þess á flugsamgöngur enn í fersku minni. Lava var kominn á markað áður en gosið varð, en salan tók mikinn kipp í Bandaríkjunum eftir það.Og rúmið dansaði Flestar afurðir brugghússins bera einhvers konar vísun í náttúruna í umhverfi Ölvisholts. Fyrsta afurðin var Skjálfti, sem dregur nafn sitt af stóra skjálftanum sem reið yfir Suðurland árið 2000. Hann átti upptök sín um 3 kílómetra frá bæjarmörkum Ölvisholts. „Það varð meiriháttar tjón á bænum. Ég var sjálfur hér uppi á 2. hæð í húsi sem var byggt árið 1909. Ég hafði verið til miðnættis að gera við plóg og lá undir honum. Ég var svo nýkominn inn í rúm þegar skjálftinn kom. Ég man að rúmið dansaði um allt herbergið. Það var mjög einkennilegt," segir Jón og segist að vonum hafa verið feginn að vera kominn undan plógnum þegar skjálftinn reið yfir, enda væri hann varla til frásagnar um hann ef svo hefði ekki verið.Yfirnáttúrulegur Skjálfti Þessi viðburður hafði slík áhrif á heimilisfólk að það þótti sjálfsagt að tengja fyrsta bjórinn frá Ölvisholti við hann. För Skjálfta um heiminn hefur verið lyginni líkust. Í hvert sinn sem hann hefur verið fluttur inn í nýtt land hefur jarðskjálfti fylgt í kjölfarið. „Tveimur dögum fyrir formlegt opnunarhóf hérna hjá okkur kom skjálfti. Við vorum búin að stefna hingað ýmsum mikilmennum og báðum sjónvarpsstöðvunum, sem ætluðu að koma og gera frétt. Þegar kom að hófinu fékk ég hins vegar þau svör á báðum stöðvum að þær treystu sér ekki til að fjalla um bjór með þessu nafni á þessum viðkvæmu tímum fyrir Sunnlendinga," segir Jón og skellir upp úr. Og svipaðar sögur er að segja af fleiri stöðum. „Þremur vikum eftir að við byrjuðum að selja Skjálfta í Malmö kom fyrsti jarðskjálftinn þar í sextíu ár. Næst fórum við til Álandseyja og þá kom fyrsti skjálftinn þar frá upphafi. Þegar fyrsta sendingin okkar var á leið til Kanada hringdi í mig blaðamaður frá Ontario-fylki. Ég sagði honum þessa sögu og lauk símtalinu með orðunum „þið verðið að passa ykkur, það mun allt leika á reiðiskjálfi". Þremur vikum eftir að hann fór í búðir í Toronto kom þar risaskjálfti og kirkjan í heimabæ þessa blaðamanns hrundi til grunna." Skemmst er frá því að segja að Skjálfti hefur ekki lagt undir sig fleiri lönd...enn þá!Háleit framtíðarmarkmið Nú þegar framleiðir brugghúsið í Ölvisholti 600 þúsund flöskur af bjór á ári, en full afkastageta þess er milljón litlar flöskur. Jón segir enn töluvert svigrúm fyrir stækkun á verksmiðjunni, þó að hann eigi ekki endilega von á að hún verði alltaf í Ölvisholti. „Ég hugsa að það séu nú einhver takmörk fyrir því hvað félagið á eftir að stækka hér á bæjartorfunni hjá mér. Ef við lendum í því að heimsbyggðin getur ekki lifað án bjórsins frá Ölvisholti þá mun sú uppbygging líklega fara fram annars staðar en hér," segir hann og brosir. Hann hefur sjálfur mikla trú á að hann muni sprengja starfsemina utan af sér fyrr en síðar. „Það er í þessu eins og öðru. Ef maður setur metnað í vinnuna þá kemur eitthvað gott út úr því. Við höfum sett okkur mjög háleit markmið og vinnum eftir þeim. Við erum að spila í úrvalsdeildinni á heimsvísu. Það er bara þannig."
Mest lesið Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Innlent Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Innlent „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Innlent Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Innlent Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Innlent Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Innlent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ Innlent Ákvörðun dómsmálaráðherra gríðarleg vonbrigði Innlent Fleiri fréttir Engar skýringar frá saksóknara, Íslandsmet í umræðum og óvæntur hvalur Íslandsmet slegið í málþófi Ekið á sjö ára barn í Borgartúni Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Skorið á bönd palestínska og úkraínska fánans Konan er komin í leitirnar Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Alls 246 ökumenn sektaðir og átta sviptir vegna hraðaksturs Eldri borgarar skemmtu sér í múmínkastalanum Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Handviss um að Sjálfstæðisflokkurinn fái yfir þrjátíu prósent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Skráningargjöld, fylgistap og gettó á Gasa Bæjarráð Voga vill gera ráð fyrir flugvelli í Hvassahrauni Leggur til þjóðaratkvæðagreiðslu um bókun 35 Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Flugvél Play lenti í hagléli og þurfti að snúa við Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Óskar viðbragða ráðherra við löngum afgreiðslutíma Lögregla lýsir eftir heilabilaðri konu á Akureyri „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Vilja taka fjármálaáætlun til umræðu Einu verslun Þingeyringa lokað Aðsóknarmet slegið í lögreglunám Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Ákvörðun dómsmálaráðherra gríðarleg vonbrigði Lögreglan lýsir eftir Hebu Ýr Öll tölfræði um málþófið á einum stað: Íslandsmet á næsta sólarhring Sjá meira