Fótbolti

Helgi Valur á bekknum í sigri AIK

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Helgi Valur og félagar í AIK á æfingu í síðustu viku.
Helgi Valur og félagar í AIK á æfingu í síðustu viku. Mynd/Heimasíða AIK
Helgi Valur Daníelsson var aldrei þessu vant ekki í byrjunarliði AIK sem lagði Åtvidaberg 1-0 að velli í efstu deild sænsku knattspyrnunnar í dag.

Helgi Valur kom inn á sem varamaður á 78. mínútu. Martin Lorentzson skoraði eina mark leiksins á 43. mínútu. AIK situr í 4. sæti deildarinnar með 27 stig að loknum 16 leikjum.

AIK mætir FH í síðari viðureign liðanna í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu á Kaplakrikavelli á fimmtudag. Fyrri leiknum í Svíþjóð lauk með jafntefli 1-1.

Elfsborg, lið Skúla Jóns Friðgeirssonar, lagði Kalmarr 3-0 á heimavelli í dag og hefur sex stiga forskot á Malmö á toppi deildarinnar. Skúli Jón er frá keppni vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×