Fótbolti

Luis Suárez lagði upp sigurmark Úrúgvæ á Old Trafford

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Luis Suárez í leiknum í dag.
Luis Suárez í leiknum í dag. Mynd/AFP
Luis Suárez, leikmaður Liverpool, lagði upp sigurmark Úrúgvæ í fyrsta leik liðsins í fótboltakeppni Ólympíuleikanna í London í dag en Úrúgvæmenn unnu þá 2-1 sigur á Sameinuðu arabísku furstadæmunum á Old Trafford í Manchester.

Ismail Matar kom Sameinuðu arabísku furstadæmunum yfir á 23. mínútu og liðið hélt forystunni í heilar 19 mínútur eða þar til að aðeins þrjár mínútur voru til hálfleiks.

Gastón Ramírez, leikmaður Bologna á Ítalíu, jafnaði þá metin fyrir Úrúgvæ þegar hann skoraði með skoti beint út aukaspyrnu á 42. mínútu. Það var einmitt Luis Suárez sem fékk aukaspyrnuna.

Nicolás Lodeiro, leikmaður Ajax í Hollandi, kom Úrúgvæ yfir á 56. mínútu eftir að hafa fengið boltann frá Luis Suárez. Lodeiro hafði komið inn á sem varamaður í hálfleik.

Úrúgvæ vann þarna skyldusigur en seinna í kvöld mætast Bretland og Senegal í hinum leiknum í riðlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×