Fótbolti

Franska sambandið dæmdi Samir Nasri í þriggja leikja bann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Samir Nasri.
Samir Nasri. Mynd/AFP
Samir Nasri missir af þremur næstu landsleikjum Frakka vegna framkomu sinnar gagnvart frönskum blaðamanni á Evrópumótinu í sumar. Aganefnd franska sambandsins tilkynnti um ákvörðun sína í dag.

Nasri var afar bitur út í blaðamenn á meðan Evrópumótinu stóð en auk þess að drulla yfir umræddan blaðamann eftir lokaleik liðsins þá sussaði Nasri á annan eftir að hann skoraði á móti Englandi í fyrsta leik Frakka í keppninni.

Nasri missir af vináttulandsleik á móti Úrúgvæ og svo leikjum á móti Finnlandi og Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM.

Jeremy Menez var við sama tækifæri dæmdur í eins leiks bann fyrir hegðun sína á EM og þeir Hatem Ben Arfa og Yann M'Vila voru báðir ávítaðir af aganefnd franska sambandsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×