Prandelli ánægður með Balotelli Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 1. júlí 2012 16:15 Prandelli fylgist náið með Balotelli á æfingu ítalska landsliðsins. MYND:NORDIC PHOTOS/GETTY
Cesare Prandelli þjálfari Ítalíu er mjög ánægður með framgöngu framherjans uppátækjasama Mario Balotelli á Evrópumeistaramótinu í Úkraínu og Póllandi. Þjálfarinn segir Balotelli í góðu ásigkomulagi fyrir úrslitaleikinn gegn Spáni í kvöld. „Okkur hefur alltaf fundist hann mjög hæfileikaríkur. Hann er nú í umhverfi þar sem hann getur rætt við sanna sigurvegara, menn sem hafa unnið marga titla og náð góðum árangri,“ sagði Prandelli á blaðamannafundi í gær fyrir úrslitaleikinn í kvöld. „Sú stund rennur alltaf upp hjá hverjum og einum að þú þurfir að vera nógu hugrakkur til að geta tekið inn ráðleggingar annarra því úrslitin verða að vera í fyrirrúmi. Við höfum beðið hann um að gera vissa hluti og á þessum tímapunkti gerir hann þá,“ sagði þjálfari ítalska landsliðsins. Balotelli þarf að skora eitt mark til að ná forystunni í baráttunni um markakóngstitil keppninnar eftir að hafa skorað tvö mörk í undanúrslitunum og þrjú mörk alls í keppninni líkt og Mario Gomez, Cristiano Ronaldo, Alan Dzagoev og Mario Madzukic sem allir hafa lokið keppni. Spánverjarnir Fernando Torres og Cesc Fabregas hafa skorað tvö mörk hvor fyrir kvöldið en Prandelli skilur hvorki upp né niður í þeirri umræðu að spænska liðið leiki leiðinlegan fótbolta. „Það tal á sér stað vegna þess að liðið hefur unnið mikið. Spánn leikur ekki leiðinlegan fótbolta, sama á hvernig það er litið,“ sagði Prandelli.
Mest lesið Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Fótbolti Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Fótbolti Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Fótbolti Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Fótbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann „Það ruglaður að manni finnst maður alltaf bestur“ Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Þrjú félög örugg með að eignast nýjan heimsmeistara Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Fylkismenn kláruðu Njarðvíkinga fyrir hlé „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Tveir öflugir Spánverjar æfðu ekki með restinni af liðinu Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Harður gagnrýnandi Trumps við hlið hans á úrslitaleik HM Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Bríet Fjóla keypt til Þróttar Blatter baunar aftur á FIFA: „Lengsta hlé í sögu fótboltans“ Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Svarar Romero fullum hálsi: „Veit um hvað ég er að tala“ Yngri bróðir með frábæra ferilskrá tekur slaginn með KA Bowen heldur tryggð eftir fallið Loftgæðin hættuleg leikmönnum Heimsmeistarar fá hring Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Flugóður forseti FIFA Sjá meira