Carlos Alberto: Það færi 1-1 hjá Brasilíu 1970 og Spáni 2012 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júlí 2012 23:15 Carlos Alberto með heimsbikarnum. Mynd/Nordic Photos/Getty
Spánverjar unnu í gær þriðja stórmótið í röð og í kjölfarið hafa margir lýst því yfir að þarna sé á ferðinni besta fótboltalandslið allra tíma. Árangur liðsins er einstakur en flestir knattspyrnuspekingar hafa staldrað við brasilíska landsliðið frá HM 1970 þegar kemur að því útnefna besta fótboltalandslið allra tíma. Carlos Alberto var fyrirliði Brasilíumanna sem fóru illa með Ítala í úrslitaleiknum í Mexíkóborg árið 1970 alveg eins og Spánverjar gerðu í Kænugarði í gærkvöld. BBC spurði hann út í spænska landsliðið. Brasilíumenn unnu Ítali 4-1 úrslitaleik HM 1970 en Spánverjar gerðu enn betur þegar þeir unnu 4-0 sigur á Ítölum í gær. „Fólk segir að brasilíska landsliðið frá 1970 sé besta landslið sögunnar og ér er sammála þeim," sagði Carlos Alberto við BBC. Carlos Alberto lék sem bakvörður og skoraði eitt marka liðsins í úrslitaleiknum á HM 1970 eftir að hafa fengið frábæra sendingu frá Pele. Í gær var það bakvörðurinn Jordi Alba sem skoraði eitt marka spænska liðsins eftir að hafa fengið frábæra sendingu frá Xavi. „Það er erfitt að segja hvort liðið myndi vinna, Brasilía 1970 og Spánn 2012. Ég segi að þessi leikur færi 1-1 því eins og við áttum ekki skilið að tapa leik árið 1970 þá eiga Spánverjar ekki skilið að tapa núna," sagði Carlos Alberto en hann er mjög hrifinn af spænska landsliðinu. „Ég fagnaði gríðarlega hverju marki sem Spánverjarnir skoruðu á Evrópumótinu. Ég elska fótboltann sem þeir spila því ég elska að sjá bestu leikmennina gera það sem þeir kunna best," sagði Carlos Alberto.
Mest lesið Ísland - Króatía | Brons í boði Handbolti Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti „Verður nú varla verra. Eða jú, kannski“ Handbolti Gísli valinn í úrvalslið EM Handbolti Veikindi í króatíska hópnum og markvörðurinn sat heima Handbolti Sér í gegnum Dag: „Hann er bara að segja þetta til að spila með Íslendinga“ Handbolti Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Handbolti „Bæði lið eru á felgunni“ Handbolti Bláir í rauðu hafi: „Eins og við værum boðflennur í einkapartýi“ Handbolti Allir sérfræðingar TV 2 með Gísla í úrvalsliðinu Handbolti Fleiri fréttir Man. Utd - Fulham | Heldur draumur Carricks áfram? Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Hearts náði sjö stiga forskoti Yamal og Rashford á skotskónum í sigri Börsunga Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Fiorentina tapaði fyrir meisturunum Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Vildi ekki peninginn Mourinho mætir Real Madrid aftur eftir ævintýralegan sigur Benfica Brann slapp inn í umspilið eftir hjálp frá öðrum velli Mourinho bað Arbeloa afsökunar á fagnaðarlátunum Hvaða lið gætu mæst í umspili og sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar? Sjáðu markaflóðið í Meistaradeildinni Fékk þjálfarann til að dansa við sig í miðjum leik Markvörður Mourinho tryggði liðið áfram og Bodö/Glimt vann í Madrid Viktor yngstur í sögunni til að skora Evrópumark á Nývangi Sjáðu Viktor skora hjá Barcelona fyrir framan landsliðsþjálfarann Svona var lokaumferðin í Meistaradeildinni Mættu með snjóinn með sér til Madrid Allt undir á lokakvöldi: Sex ensk lið gætu farið beint í 16-liða úrslit Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Víkingur og Valur mætast í úrslitum Reykjavíkurmótsins Hlín á láni til Fiorentina FH selur Sigurð Bjart til Spánar Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjá meira