Dómari leiks Englands og Úkraínu sendur heim 20. júní 2012 15:45 Kassai og félagar að leik loknum í gær NordicPhotos/Getty
Pierluigi Collina, yfirmaður dómaramála hjá Knattspyrnusambandi Evrópu, tilkynnti í dag að Ungverjinn, Viktor Kassai og aðstoðarmenn hans myndu ekki koma meira við sögu á Evrópumótinu í fótbolta sem nú stendur yfir í Póllandi og Úkraínu. Kassai og félagar gerðu sig seka um mistök í leik Englands og Úkraínu í gær, mistök sem nú reynast þeim dýrkeypt. Dómurum leiksins yfirsást þegar Marko Devic, framherja Úkraínu tókst að koma boltanum yfir marklínu Englendinga, rétt um hálftíma fyrir leikslok. Sjónvarpsupptökur sýndu, svo ekki var um villst að knötturinn fór allur yfir línuna áður en John Terry náði til hans. Englendingar unnu leikinn, 1-0 en Úkraína þurfti á þremur stigum að halda til að komast áfram í næstu umferð. "Við gerðum mistök", sagði Collina. "Ég vildi að við hefðum ekki gert þessi mistök en staðreyndin er hinsvegar önnur. Mannleg mistök eru óhjákvæmileg og dómarar eru jú, mannlegir." Sepp Blatter, forseti Alþjóða knattspyrnusambandsins, ítrekaði í gær vilja sinn til að innleiða marklínutækni í knattspyrnuleikjum en hann hefur lengi verið talsmaður þess.
Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Víkingar með bakið upp við vegg Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Náði að plata Óskar Örn Sport Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Fótbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Fleiri fréttir Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Sjá meira