Stöngin inn hjá Fabregas og Spánverjar í úrslit Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. júní 2012 13:54 Nordic Photos/Getty
Spænska karlalandsliðið í knattspyrnu tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleik Evrópumótsins í knattspyrnu eftir sigur á Portúgal í vítaspyrnukeppni í undanúrslitaviðureigninni. Lui Patricio varði fyrstu spyrnu Spánverja sem Xabi Alonso tók. Spánverjar voru þó fljótir að taka gleði sína á ný þegar Iker Casillas varði spyrnu Joao Moutinho. Andres Iniesta, Gerard Pique og Sergio Ramos skoruðu úr næstu þremur spyrnum Spánverja. Hið sama gerðu Pepe og Nani en þá var röðin komin að hægri bakverði Portúgala Bruno Alves. Skot Alves small í þverslánni og Spánverjar í kjörstöðu. Ólíkt spyrnu Alves sem hrökk af slánni og út fór spyrna Cesc Fabregas af stönginni og inn. Spænskur sigur í höfn og Evrópumeistararnir eiga alla möguleika á að verja titil sinn. Athygli vakti að Cristiano Ronaldo var ekki á meðal fyrstu fjögurra spyrnumanna Portúgala í vítakeppninni. Talið er að Ronaldo hafi átt að taka fimmtu spyrnu Portúgala sem aldrei kom til. Leikur liðanna í Donetsk í kvöld olli nokkrum vonbrigðum. Portúgalar pressuðu Spánverja ofarlega á vellinum sem virtist setja þá spænsku útaf laginu. Hvorugu liðinu tókst að skapa sér teljandi marktækifæri í fyrri hálfleik. Eina færið í venjulegum leiktíma féll fyrir Cristiano Ronaldo á lokamínútu leiksins. Portúgalar brunuðu þá í skyndisókn eftir þunga sókn Spánverja. Boltinn var lagður á Ronaldo sem var í kjörstöðu vinstra megin í vítateignum en skot hans með vinstri fæti fór hátt yfir markið. Ronaldo átti nokkrar tilraunir utan af velli en sem fyrr tekst Portúgalanum skotvissa ekki að skora utan vítateigs á stórmótum. Andres Iniesta og Jesus Navas fengu fín færi í framlenginunni til að tryggja Spánverjum sigur en allt kom fyrir ekki. Úrslitin réðust svo í framlengingunni sem fyrr segir. Þetta er í fjórða skiptið sem Spánverjar komast í úrslit EM en þeir eiga titil að verja. Á morgun kemur í ljós hverjir andstæðingar Spánverja í úrslitaleiknum verða. Þá mætast Þjóðverjar og Ítalir í Varsjá klukkan 18.45.
Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Sjá meira