Balotelli skoraði tvívegis og Ítalir komnir í úrslit Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. júní 2012 14:30 Nordicphotos/AFP
Ítalir eru komnir í úrslit á Evrópumóti karlalandsliða í knattspyrnu en liðið lagði Þjóðverja að velli 2-1 í undanúrslitaleiknum í Varsjá í kvöld. Mario Balotelli skoraði bæði mörk Ítala í fyrri hálfleik en Mesut Özil minnkaði muninn í viðbótartíma úr vítaspyrnu. Eftir kröftuga byrjun Þjóðverja voru það bláklæddir Ítalir sem komust yfir. Antonio Cassano lék þá á Mats Hummels varnarmann Þjóðverja og sendi fyrir markið. Þar var enginn annar en Mario Balotelli mættur og skallaði boltann af krafti í netið af stuttu færi. Þjóðverjar, sem höfðu aldrei unnið Ítali í leik á stórmóti, blésu til sóknar en blásturinn var heldur mikið. Eftir hornspyrnu þeirra þýsku gleymdi varnarlína þeirra sér illa. Löng sending Ricardo Montolivo féll fyrir fætur Mario Balotelli á vallarhelmingi Þjóðverja. Balotelli lék boltanum inn á vítateig Þjóðverja og hamraði boltann efst í nærhornið gjörsamlega óverjandi fyrir Manuel Neuer í marki þeirra þýsku. Þjóðverjar gerðu oft harða atlögu að marki Ítala í fyrri hálfleiknum en Gianluigi Buffon var öryggið uppmálað í markinu. Þjóðverjar gerðu hvað þeir gátu í síðari hálfleik til þess að minnka muninn en náðu aldrei almennilega að ógna marki Buffon. Næst komst varamaðurinn Marco Reus en aukaspyrna hans var varinn af Buffon í þverslána. Ítalir fengu kjörin tækifæri til þess að klára leikinn án árangurs og brá í brún þegar Þjóðverjar fengu vítaspyrnu í viðbótartíma. Mesut Özil skoraði af fádæma öryggi úr spyrnunni en markið kom of seint. Ítalir fögnuðu sigri og sæti í úrslitaleiknum gegn Spánverjum á sunnudag. Ítalir og Spánverjar voru einmitt saman í riðlakeppninni þar sem liðin skildu jöfn 1-1.
Mest lesið Bláir í rauðu hafi: „Eins og við værum boðflennur í einkapartýi“ Handbolti Allir sérfræðingar TV 2 með Gísla í úrvalsliðinu Handbolti Segir Dag hafa beðist afsökunar Handbolti Gidsel gefur lítið fyrir tuð Þjóðverja Handbolti Danir láta Gísla heyra það eftir gagnrýni: „Haltu kjafti Ísland“ Handbolti „Mér var nákvæmlega sama um þetta allt saman“ Handbolti Svaf yfir sig og missti af rútunni Handbolti Efins um Pargo-skiptin: „Held að þetta sé ekki rétt hjá þeim“ Körfubolti Utan vallar: Af hverju töpuðu hetjurnar okkar gegn Dönum? Sport „Ég nenni ekki að eyða orku í þetta EHF lið“ Handbolti Fleiri fréttir Hearts náði sjö stiga forskoti Yamal og Rashford á skotskónum í sigri Börsunga Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Fiorentina tapaði fyrir meisturunum Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Vildi ekki peninginn Mourinho mætir Real Madrid aftur eftir ævintýralegan sigur Benfica Brann slapp inn í umspilið eftir hjálp frá öðrum velli Mourinho bað Arbeloa afsökunar á fagnaðarlátunum Hvaða lið gætu mæst í umspili og sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar? Sjáðu markaflóðið í Meistaradeildinni Fékk þjálfarann til að dansa við sig í miðjum leik Markvörður Mourinho tryggði liðið áfram og Bodö/Glimt vann í Madrid Viktor yngstur í sögunni til að skora Evrópumark á Nývangi Sjáðu Viktor skora hjá Barcelona fyrir framan landsliðsþjálfarann Svona var lokaumferðin í Meistaradeildinni Mættu með snjóinn með sér til Madrid Allt undir á lokakvöldi: Sex ensk lið gætu farið beint í 16-liða úrslit Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Víkingur og Valur mætast í úrslitum Reykjavíkurmótsins Hlín á láni til Fiorentina FH selur Sigurð Bjart til Spánar Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Börsungar ósáttir eftir að PSG náði táningi frá þeim Sjá meira