Dauft jafntefli hjá Englendingum og Frökkum 11. júní 2012 15:09 Gerrard og Nasri í baráttunni í dag. Nordic Photos / Getty Images
Englendingar og Frakkar gerðu jafntefli, 1-1, í fyrri leik dagsins á EM. Þetta var fyrsti leikur liðanna í D-riðli og Englendingar nokkuð sáttir við stigið enda ekki við miklu búist af þeim á mótinu. Frakkar eru nú búnir að spila 22 leiki í röð án þess að tapa. Fyrri hálfleikur var ágætis skemmtun. Frakkarnir meira með boltann en Englendingarnir fengu betri færi. Vörðust þess utan mjög vel. Það var Joleon Lescott sem kom Englandi yfir eftir hálftíma leik. Hann skallaði þá aukaspyrnu Steven Gerrard í netið. Frakkar hertu róðurinn eftir markið og enska liðið féll aftar en liðið hafði verið fram að því. Sex mínútum fyrir hlé bar pressa Frakkana svo árangur. Samir Nasri náði þá góðu skoti utan teigs sem fór á nærstöngina og í netið. Joe Hart markvörður sá boltann seint en hefði samt líklega getað gert betur. 1-1 í hálfleik. Það hægðist nokkuð á leiknum í síðari hálfleik. Hitinn mikill og leikmenn virkuðu nokkuð þreyttir. Frakkar sem fyrr meira með boltann en engin færi hjá hvorugu liðinu. Hálfleikurinn leið rólega án þess að nokkuð markvert gerðist. Englendingar augljóslega sáttarið við jafnteflið og gerðu allt hvað þeir gátu til þess að hægja á leiknum undir lokin. Frakkar náðu aldrei að opna ensku vörnina almennilega og sama upp á teningnum hinum megin. Jafntefli því sanngjörn niðurstaða þegar upp var staðið.
Mest lesið Kallaður heimskur og hræsnari fyrir að gagnrýna þjóðarmorð í Ísrael Fótbolti Blómstrar undir stjórn Freys: „Veit ekki hversu lengi við náum að halda honum“ Fótbolti Maldini ranglega ásakaður um eiturlyfjanotkun Fótbolti Prentaði mynd af brotum sem áttu að verðskulda rauð spjöld Fótbolti Baulað á Luke Littler í Hollandi Sport Steinn orðinn vinsæll eftir að Salah settist á hann Fótbolti Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Enski boltinn Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Enski boltinn Stytta keppnir í Formúlu 1 Formúla 1 Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Golf Fleiri fréttir Steinn orðinn vinsæll eftir að Salah settist á hann Prentaði mynd af brotum sem áttu að verðskulda rauð spjöld Maldini ranglega ásakaður um eiturlyfjanotkun Kallaður heimskur og hræsnari fyrir að gagnrýna þjóðarmorð í Ísrael Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Blómstrar undir stjórn Freys: „Veit ekki hversu lengi við náum að halda honum“ Eiði Smára ekki skemmt Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu „Mér finnst það ekki vandamál“ Draga verulega úr umfjöllun um leiki Írlands við Ísraels Gaui Þórðar opnar sig um veikindi: „Erfiðir dagar, mánuðir og vikur“ Tókust á um Íslendinginn: „Ætlarðu að vera svona barnalegur?“ Dagur Dan glímdi við Messi í nótt Sveindís Jane tileinkaði kærasta sínum markið Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Áfall fyrir landsliðið og Söndru sem var borin af velli Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Íslendingarnir sáu um frækinn sigur en Kristall fékk rautt „Hugsa að ég geri bara ekki rassgat“ „Svo kemur bara mark eftir mark eftir mark“ „Hefði verið sætt að ná þrennu í fyrri hálfleik“ Uppgjörið: Keflavík - Fram 2-2 | Stig sem gerir ekki mikið fyrir bæði lið „Ætlum að halda áfram að vera hugrakkir“ Sjá meira