Fótbolti

Englendingar í góðum málum | Svíar úr leik

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/AFP
Theo Walcott og Danny Welbeck voru hetjur Englendinga er liðið lagði Svía 3-2 í D-riðli Evrópumóts karla í knattspyrnu í Kænugarði í kvöld. Eftir tapið eru vonir Svía um sæti í átta liða úrslitunum úti.

Andy Carroll, leikmaður Liverpool, kom Englandi yfir um miðjan fyrri hálfleik. Þá skallaði hann fyrirgjöf liðsfélaga síns Steven Gerrard í netið og þakkaði með því Roy Hodgson, landsliðsþjálfara Englands, traustið. Englendingar leiddu í hálfleik og í góðum málum.

Svíar komu mun sterkari til leiks í síðari hálfleik og voru á augabragði komnir með forystu. Í bæði skiptin var Olof Mellberg, varnartröll sænska liðsins, á ferðinni þótt fyrr markið verði mögulega skráð sem sjálfsmark á Glen Johnson.

Enginn vafi var á hver átti síðara markið en Mellberg var þá á auðum sjó í teignum og skallaði aukaspyrnu Kim Källström í netið. Hodgson skipti í kjölfarið Theo Walcott inn á fyrir James Milner og sú skipting átti eftir að skila sér.

Á 64. mínútu fékk Walcott boltann fyrir utan teiginn, lét vaða og í netinu hafnaði knötturinn. Andreas Isaksson, markvörður Svía, leitt ekki vel út í markinu en endursýningar bentu til þess að boltinn hefði haft viðkomu í varnarmanni Svía.

Walcott var svo aftur á ferðinni stundarfjórðung síðar. Þá átti hann frábæran sprett upp að endalínu inni á vítateig Svía og sendi fyrir. Þangað var Danny Welbeck mættur og stýrði knettinum glæsilega í fjærhornið.

Englendingar fengu gott færi undir lokin til að bæta við marki en Isaksson varði skot Gerrard af stuttu færi vel.

Englendingar eru í góðum málum með fjögur stig úr tveimur leikjum. Svíar eru hins vegar stigalausir og eiga ekki lengur möguleika á að komast upp úr riðlinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×