Sænskur blaðamaður njósnaði um liðsuppstillingu Englands 17. júní 2012 16:00 Svíar og Englendingar áttust við í frábærum leik á EM sem endaði 3-2 fyrir England. Nordic Photos/Getty Images
Leikur Englendinga og Svía á EM s.l. föstudag var stórkostleg skemmtun þar sem að Englendingar fóru með sigur af hólmi 3-2. Það dugði ekki fyrir Svía að þeir fengu nánast allar upplýsingar um liðsval og leikaðferð Roy Hodgson þjálfara enska landsliðsins löngu áður en leikurinn hófst. Sænskur blaðamaður Ola Billger náði að horfa á „töflufund" enska landsliðsins í gegnum hótelglugga í Kænugarði og sendi hann allar upplýsingarnar á forráðamenn sænska landsliðsins – sem voru afar þakklátir fyrir. Billger, sem starfar sem blaðamaður á Svenska-Dagbladet, sá fyrir tilviljun að enska landsliðið var að funda þar sem hann leit út um gluggann á hótelherbergi sínu. Hann tók fram sjónauka og sá hvernig Englendingar ætluðu að stilla upp liði sínu – og einnig hvaða áherslur þeir ætluðu að leggja upp með í sókn – sem vörn. „Ég var með frábært útsýni í 40 mínútur, við heyrðum að sjálfsögðu ekki neitt, en við sáum ýmislegt sem voru góðar upplýsingar fyrir Svía. Við sáum að Andy Carroll yrði í byrjunarliðinu og Alex Oxlade-Chamberlain yrði á bekknum," sagði Billger. Hann kom upplýsingunum á framfæri til Reine Almquist sem starfar fyrir sænska knattspyrnusambandið. Þessar upplýsingar komu hinsvegar ekki í veg fyrir að Svíar töpuðu leiknum 3-2 og eru þeir úr leik í keppninni um tvö efstu sætin í D-riðlinum. Lokaumferðin í D-riðli fer fram á þriðjudaginn þar sem að Englendingar leika gegn Úkraínu, og Svíar gegn Frökkum. England og Frakkland eru með 4 stig, Úkraína 3 og Svíar eru án stiga.
Mest lesið Kallaður heimskur og hræsnari fyrir að gagnrýna þjóðarmorð í Ísrael Fótbolti Blómstrar undir stjórn Freys: „Veit ekki hversu lengi við náum að halda honum“ Fótbolti Eiði Smára ekki skemmt Enski boltinn Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Íslenski boltinn Tókust á um Íslendinginn: „Ætlarðu að vera svona barnalegur?“ Fótbolti Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu Enski boltinn Gaui Þórðar opnar sig um veikindi: „Erfiðir dagar, mánuðir og vikur“ Íslenski boltinn Ellefu ára senuþjófur fékk að vaka: „Ef hann ætlar að vinna þá þarf hann pepp“ Sport Áfall fyrir landsliðið og Söndru sem var borin af velli Fótbolti Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Íslenski boltinn Fleiri fréttir Steinn orðinn vinsæll eftir að Salah settist á hann Prentaði mynd af brotum sem áttu að verðskulda rauð spjöld Maldini ranglega ásakaður um eiturlyfjanotkun Kallaður heimskur og hræsnari fyrir að gagnrýna þjóðarmorð í Ísrael Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Blómstrar undir stjórn Freys: „Veit ekki hversu lengi við náum að halda honum“ Eiði Smára ekki skemmt Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu „Mér finnst það ekki vandamál“ Draga verulega úr umfjöllun um leiki Írlands við Ísraels Gaui Þórðar opnar sig um veikindi: „Erfiðir dagar, mánuðir og vikur“ Tókust á um Íslendinginn: „Ætlarðu að vera svona barnalegur?“ Dagur Dan glímdi við Messi í nótt Sveindís Jane tileinkaði kærasta sínum markið Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Áfall fyrir landsliðið og Söndru sem var borin af velli Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Íslendingarnir sáu um frækinn sigur en Kristall fékk rautt „Hugsa að ég geri bara ekki rassgat“ „Svo kemur bara mark eftir mark eftir mark“ „Hefði verið sætt að ná þrennu í fyrri hálfleik“ Uppgjörið: Keflavík - Fram 2-2 | Stig sem gerir ekki mikið fyrir bæði lið „Ætlum að halda áfram að vera hugrakkir“ Sjá meira