Rússar skoruðu fjögur mörk hjá Petr Cech Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júní 2012 13:29 Mynd/AP
Rússar eru til alls líklegir í EM í fótbolta í ár eftir 4-1 sigur á Tékkum í seinni leik dagsins í A-riðli. Hinn 21 árs gamli Alan Dzagoev skoraði tvö mörk fyrir Rússa og Roman Pavlyuchenko kom inn á sem varamaður og bæði skoraði og lagði upp mark. Petr Cech, markvörður Tékka og Evrópumeistara Chelsea, þurfti því að sækja boltann fjórum sinnum í markið sitt í kvöld. Tékkarnir byrjuðu leikinn vel og voru sterkari aðilinn fyrstu mínútur leiksins en það voru Rússarnir sem skoruðu fyrsta markið. Alan Dzagoev kom Rússum í 1-0 á 15. mínútu þegar hann fylgdi vel á eftir þegar Aleksandr Kerzhakov skallaði boltann í stöngina efrir frábæra sókn upp hægri kantinn. Alan Dzagoev gat komið Rússum í 2-0 skömmu síðar eftir laglegan undirbúning Andrey Arshavin en skot hans fór framhjá. Rússarnir voru aftur á móti komnir í gang og Roman Shirokov kom þeim í 2-0 á 24. mínútu eftir stungusendingu frá Andrey Arshavin. Shirokov lyfti boltanum laglega yfir Petr Cech í marki Tékka. Það var ekki mikið í stöðunni fyrir Tékka eftir fyrri hálfleikinn en Vaclav Pilar kom með spennu inn í leikinn þegar hann minnkaði muninn í 2-1 á 52. mínútu. Pilar fékk þá frábæra sendingu inn fyrir frá Jaroslav Plasil, lék á markvörðinn og skoraði laglega. Alan Dzagoev var ekki hættur og bætti við sínu öðru marki á 79. mínútu þegar hann afgreiddi frábærlega sendingu frá Roman Pavlyuchenko. Roman Pavlyuchenko skoraði sjálfur fjórða markið þremur mínútum síðar. Hann fékk að leika sér með boltann í teignum áður en hann lét vaða upp í bláhornið frá vítateigslínunni.
Mest lesið Saka með þrennu í ótrúlegum bronsleik Fótbolti „Ég er bara í brjáluðu skapi“ Íslenski boltinn Vildi fá Nyland fyrir HM: „Það verður ansi erfitt að fá hann núna“ Fótbolti „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Íslenski boltinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Golf Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga Íslenski boltinn Bætti heimsmet í míluhlaupi sem hafði staðið í 27 ár Sport Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Fótbolti Uppgjörið: Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Saka með þrennu í ótrúlegum bronsleik Finnur til með leikmönnum: „Síðustu mánuðir verið erfiðir“ „Ég er bara í brjáluðu skapi“ Uppgjörið: Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda Vildi fá Nyland fyrir HM: „Það verður ansi erfitt að fá hann núna“ Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga „Þurfum að læra að stýra spennustiginu á milli verkefna“ „Eina leiðin er upp“ Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Fékk sigur í fimmtugsafmælisgjöf Topplið Lengjudeildarinnar fær liðsstyrk frá Stjörnunni Annar þrjú núll sigur hjá strákunum hans Freys Stórsigur á Seltjarnarnesi en markalaust í Grindavík Viktor Nói lánaður til Njarðvíkur Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann „Það ruglaður að manni finnst maður alltaf bestur“ Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Þrjú félög örugg með að eignast nýjan heimsmeistara Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Fylkismenn kláruðu Njarðvíkinga fyrir hlé „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Sjá meira