Fótbolti

Puyol verður ekki með Spánverjum á EM

Puyol verður í sumarfríi með unnustunni í stað þess að fara á EM.
Puyol verður í sumarfríi með unnustunni í stað þess að fara á EM.
Barcelona hefur staðfest að fyrirliði liðsins, Carles Puyol, muni ekki geta leikið með spænska landsliðinu á EM í sumar vegna meiðsla á hné.

Þetta er mikið áfall fyrir spænska liðið enda Puyol algjör lykilmaður í varnarleik liðsins og hefur verið lengi.

Puyol er orðinn 34 ára gamall og því er hann hugsanlega búinn að taka þátt á sínu síðasta stórmóti fyrir spænska landsliðið.

Þessi tíðindi koma nokkuð á óvart þar sem Puyol lék 90 mínútur í síðasta leik. Hann kvartaði þó vegna verks í hné og rannsóknir hafa nú leitt í ljós að hnéð er illa farið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×