Með forskot á Sarkozy 21. apríl 2012 17:30 François Hollande, forsetaefni franska sósíalistaflokksins. mynd/afp
François Hollande, forsetaefni franska sósíalistaflokksins, hefur 3,5 prósentustiga forskot á Nicolas Sarkozy forseta Frakklands en kosningabaráttu fyrir fyrri umferð forsetakosninganna, sem er á morgun sunnudag, er nú lokið. Talið er að þetta bil hækki í 12 prósentustig í síðari umferðinni. Talið er nær öruggt að þeir Hollande og Sarkozy mætist í síðari umferðinni hinn 6. maí næstkomandi, en það gera þeir tveir frambjóðendur sem bestum árangri ná í fyrri umferðinni á morgun. Lögum samkvæmt lauk formlegri kosningabaráttu í gær. Nicolas Sarkozy hélt í gær tilfinningaþrungna ræðu fyrir stuðningsmenn sína í borginni Nice þar sem hann lýsti því yfir að hann hefði bjargað bankakerfi Frakklands haustið 2008 án þess að eyða einu senti, að því er fram kemur í Financial Times. Forsetakosningarnar í Frakklandi skipta miklu máli fyrir alla Evrópu, þar sem Frakkland er eitt öflugasta ríkið í Evrópusambandinu. Sarkozy hefur verið einn helst arkitektinn að viðbrögðum Evrópuríkja við fjármálakrísunni ásamt Angelu Merkel kanslara Þýskalands. Mikill stuðningur við Francois Hollande hefur valdið óróa á fjármálamörkuðum þar sem hann hefur lýst því yfir að að hann vilja leysa upp fjármálastöðugleikasáttmála sem náðist meðal ríkjanna á evrusvæðinu fyrr í vetur. Ef Hollande nær kjöri verður hann fyrsti forseti franskra sósíalista frá 1995. Í kosningabaráttunni hefur Hollande færst enn lengra til vinstri til að ná fylgi af frambjóðendum á jaðrinum eins og Jean-Luc Mélenchon, en Hollande hefur meðal annars lagt til hækkun lágmarkslauna. Þetta hefur orðið tilefni til nokkurrar gagnrýni frá Sarkozy sem sagði þennan keppinaut sinn vera gísl andstæðinga sinna. Skoðanakönnuns em birtist í Le Monde í gær sýndi Hollande með 3,5 prósentustiga forskot fyrir kosningarnar á morgun sem myndi síðan breikka í 12 prósentustig í síðari umferðinni hinn 6. maí næstkomandi.
Mest lesið Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Innlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Erlent Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Innlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Veður Fleiri fréttir Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Sjá meira