Erlent

Lífshættulegur bandormur fannst í ref á Jótlandi

Lífshættulegur bandormur hefur fundist í ref sem veiddur var á Jótlandi nýlega. Ormur þessi getur borist í fólk og veldur þá ólæknandi lifrarsjúkdómi sem yfirleitt dregur viðkomandi til dauða.

Í umfjöllun Jyllands Posten um málið segir að við rannsókn dýralækna hafi komið í ljós að 20 stykki af orminum hafi verið í refnum. Þessi tegund af ormi fannst síðast í Danmörku árið 2000 en nú bendir allt til að hann sé að finna um allt landið.

Refir og hundar fá þennan orm í sig við að éta mýs eða önnur nagdýr og ormurinn er þekkt heilbrigðisvandamál víða í miðhluta Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×