Erlent

Sorg í dýragarðinum eftir að fílsungi drapst við fæðingu

Hoa, nokkrum dögum áður en litli fílsunginn kom í heiminn.
Hoa, nokkrum dögum áður en litli fílsunginn kom í heiminn.
Aðstandendur dýragarðs í Leipzig í Þýskalandi eru með sorg í hjarta þessa dagana því fílsunginn sem beðið hefur verið eftir síðustu mánuði drapst í morgun stuttu eftir að hann kom í heiminn.

Meira en áratugur er síðan síðasti fílsungi kom í heiminn í dýragarðinum og því var mikil gleði og tilhlökkun þegar það kom í ljós að mamman, hin tuttugu og sex ára gamla Hoa, ætti von á sér. Stuttu eftir að fílsunginn kom í heiminn réðst mamman á hann, en aðstandendurnir vita ekki hvort að hann hafi látist eftir árásina eða hafi komið í heiminn andvana.

Árið 2002 kom síðasti fílsungi í heiminn í dýragarðinum en fyrir það hafði það ekki gerst í 66 ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×