Erlent

Segir sýrlenska herinn strádepa íbúa Homs

Paul Conroy særðist í stórskotaárás sýrlenska hersins.
Paul Conroy særðist í stórskotaárás sýrlenska hersins. mynd/AP
Breskur ljósmyndari sem særðist í borginni Homs í Sýrlandi segir að sýrlenskar öryggisveitir strádepi íbúa borgarinnar.

Paul Conray særðist alvarlega í stórskotaárás sýrlenska hersins á borgina Homs fyrr í vikunni. Stuttu eftir það var hann fluttur úr borginni og hefur nú lýst reynslu sinni.

„Þetta er ólýsanlegt blóðbað," sagði Paul Conray í viðtali við fréttastofu Sky. „Þetta er ekki stríð heldur fjöldamorð."

Conray hvatti alþjóðasamfélagið til að taka af skarið og þrýsta á yfirvöld í Sýrlandi til að hleypa fulltrúum Rauða Krossins og Rauða hálfmáns inn í Homs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×