Fólskuleg líkamsárás í miðbænum - traðkaði á höfði liggjandi manns 6. mars 2012 22:59
Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhald yfir manni sem vísaði öðrum út úr samkvæmi við Laugaveg í lok febrúar og er sakaður um að hafa hrint honum niður stiga og meðal annars sparkað í höfuð hans með þeim afleiðingum að hann missti meðvitund og slasaðist lífshættulega. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 30. mars næstkomandi. Lögreglu barst tilkynning aðfaranótt mánudagsins 27. febrúar síðastliðinn um að meðvitundarlausan mann á Laugavegi í Reykjavík. Þegar lögreglan kom á vettvang var hann blóðugur í munni og á nefi. Hann var með kúlu á enninu og það kurraði í honum svo hann gat ekki tjáð sig. Mikil áfengislykt var af honum, samkvæmt greinargerð lögreglu. Hann var með far á andliti sem líktist skófari og rendur í andliti, klór á hálsi og mar á vinstri hendi. Þegar hann kom á slysadeild var hann kominn með stórt glóðarauga. Þegar tekin var tölvusneiðsmynd af heila kom í ljós höfuðkúpubrot og blæðing undir brotinu. Meðvitund hans versnaði fljótlega og var þá tekin önnur mynd af honum sem sýndi vaxandi blæðingu hægra megin. Því var framkvæmt aðgerð á honum til að fjarlægja blóðið úr heilanum á honum og stöðva blæðinguna. Aðgerðin gekk vel og var hann fluttur á gjörgæslu og sögðu læknar að hann væri í lífshættu. Ef hann hefði ekki farið í aðgerðina hefði hann látist, segja læknar. Hann er nú kominn á almenna deild en er ekki talinn vera í lífshættu þó ástand hans sé mjög tvísýnt. Hann móki meira og minna og sé ekki að fullu áttaður og sé óviðræðuhæfur. Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að maðurinn hafi verið í einhverskonar samkvæmi í íbúð kæra. Upp hafi komið deilur í íbúðinni sem hafi orðið til þess að kærði hafi ákveðið að vísa honum út úr íbúðinni. Frásögn kærða er á þá leið að þegar hann ætlaði að vísa honum út hafi hann streist á móti og kippt sér til, og við það fallið niður tröppur á stigagangi. Hann hafi því næst dregið hann út og skilið við hann með rænu og talið að hann væri að ranka við sér. Tvö vitni segja þó aðra sögu. Annað þeirra segir að kærði hafi tekið fórnarlambið hálstaki með þeim afleiðingum að það blánaði í framan. Þegar þeir voru komnir á einn stigapallinn hafi fórnarlambið byrjað að sveiflast eins og hann væri að berjast fyrir lífi sínu. Þegar kærði losið um kverkatakið hafi fórnarlambið fallið niður stigann og þá hafi kærði sparkað eða traðkað á höfðinu á honum svo það small í höfðinu. Að því loknu hafi þeir allir þrír hjálpast við að bera hann út úr húsinu. Annað vitni, sem var inni í íbúðinni allan tíman, segir að þegar mennirnir þrír hafi komið upp í íbúðuina aftur hafi þeir talað um að þeir þyrftu að samræma frásögn sína um að fórnarlambið hafi dottið í stiganum. Lögreglustjóri metur að árásin sé fólskuleg og svo virðist sem kærði hafi sparkað eða traðkað á höfðinu á fórnarlambinu þegar hann lá liggjandi á stigapallinum. Kærði í málinu hefur áður hlotið dóm fyrir ofbeldisbrot.
Mest lesið Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Innlent Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Íslendinga Innlent Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Erlent Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Innlent „Alveg hræðilegt ástand“ Innlent „Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Innlent Á ekki von á neinni byltingu innan Framsóknarflokksins Innlent Talinn hafa selt eiginkonuna til yfir 120 kaupenda í Pelicot-máli Svíþjóðar Erlent Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Innlent Óhollustuskattur hafi mest áhrif á þá tekjulægri Innlent Fleiri fréttir Grunaður fíkniefnasali stöðvaður fyrir að tala í síma Á ekki von á neinni byltingu innan Framsóknarflokksins Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Íslendinga Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Óhollustuskattur hafi mest áhrif á þá tekjulægri Gunnar, Guðfinnur og Sigríður á leið úr bæjarstjórn „Alveg hræðilegt ástand“ Aldraðir stíga fram og opna sig um „hræðilega stöðu“ Ekið á gangandi vegfaranda Suðurlandsvegi lokað vegna áreksturs tveggja bíla „Þetta er sorglegur dagur fyrir lýðræðið“ „Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Brynja Dan vill leiða lista Framsóknar í Garðabæ Samþykktu heimild til að svipta flóttamenn vernd Þurfa að brúa sex milljarða króna bil Formaður Pírata sækist eftir öðru til fjórða sæti Hildigunnur hættir strax eftir ákvörðun ráðherra Styrkur svifryks áfram hár í borginni Lögga ákærð fyrir leit án heimildar Yfirvöld hafi útvegað tvö ný rými og óbreytt ástand Afi sakaður um að nudda kynfæri stúlku Sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip Arnar Eggert hafnar því að HÍ sé „vók-útungunarstöð“ Verra að vera í bíl en gangandi í svifrykinu Kristinn Jón tekur slaginn við Alexöndru Fólk sólgið í bollur og mjög opið fyrir nýjungum Óbreytt ástand á Landspítala og svifrykið hrellir borgarbúa Kallar eftir rannsókn á snjóflóðinu á Flateyri Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Sjá meira