Erlent

Springur úr hlátri þegar blað er rifið

Micah McArthur er einungis átta mánaða gamall en er orðin heimsfrægur á veraldarvefnum. Í meðfylgjandi myndskeiði sést faðir hans rífa í sundur blað og springur þá Micah gjörsamlega úr hlátri. Myndskeiðið hefur farið eins og eldur um sinu á vefnum og hafa yfir 38 milljónir manna horft á það. Hægt er að horfa á myndskeiðið með því að smella á hlekkinn hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×