Erlent

11 látnir eftir átök í Kaíró

Ellefu létust og 2.500 særðust í átökunum.
Ellefu létust og 2.500 særðust í átökunum. mynd/AP
Ellefu létust og 2.500 særðust í átökum mótmælenda og öryggissveita í Kaíró í Egyptalandi í dag.

Mótmælin hafa staðið yfir í þrjá daga eða síðan 74 létust í óeirðum sem brutust út eftir fótboltaleik þar í landi.

Mótmælendurnir hafa haldið til við Innanríkisráðuneyti Egyptalands síðan á miðvikudag og krefjast þess að Herforingjaráðið fari frá völdum hið snarasta og axli ábyrgð á dauðsföllunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×