Fjöldi fólks hefur fyrirfarið sér við að framleiða Apple vörur Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. janúar 2012 21:30
Apple, fyrirtækið sem færir okkur iPhone, iPad og öll hin undratækin hagnaðist um 46 milljarða bandaríkjadali á síðasta fjórðungi nýliðins árs. Upphæðin nemur um 5700 milljörðum króna. Fólkið sem vinnur við að setja hlutina saman, sem þessi tæki samanstanda af, þrælar aftur á móti tímunum saman á smánarlaunum við vinnu sína. Um þetta er fjallað í fréttaskýringu sem fréttastofan CBS sjónvarpsstöðvarinnar sýndi og er birtur á vef þeirra. Í þættinum er sagt frá því að Apple hefur gert samning við fyrirtækið Foxconn, sem staðsett er í Kína, og víðar um að framleiða vörurnar á meðan Apple sér um að þróa þær. Hjá Foxconn starfa svo hundruð þúsundir manna á smánarlaunum. CBS talar við leikarann Mike Daisey, sem fór og kynnti sér aðstæður verkafólksins árið 2010 og kynnti sér aðstæðurnar. Hann setti síðan upp einleik sem byggður er á því sem hann sá. Daisey segir í viðtali við CBS að hann hafi séð verkafólk allt niður í tólf ára aldur. Átta tíma vinnuvaktir hafi verið sjaldgæfar. Fólkið vinni yfirleitt að minnsta kosti í tólf stundir. Raunar eru vinnuaðstæður fólks hjá Foxconn svo hrikalegar að SACOM, samtök sem berjast gegn misbeitingu á verkafólki, fullyrða að árið 2010 hafi að minnsta kosti 18 starfsmenn fyrirtækisins fyrirfarið sér í vinnunni og enn fleiri hafi gert tilraunir til þess. Daisey vekur athygli á því að flestir telji að vörurnar sem Foxconn framleiðir fyrir Apple, og reyndar fleiri aðila eins og Microsoft, Dell og Samsung séu framleiddar í vélum. Staðreyndin sé hins vegar sú að örkubbunum í vörunum sé raðað saman í höndum og fólk verði að gera sér grein fyrir því þegar það kaupi vörurnar. Smelltu hér til að sjá þáttinn á CBS og skoða frekari umfjöllun.
Mest lesið Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Veður „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Innlent Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Innlent Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Algjört hrun í fálkastofninum Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Sjá meira