Innlent

200 þúsund sáu flugeldasýningu Íslendinga

Búmm, búmm...
Búmm, búmm... Mynd/Pjetur
Yfir 200.000 nýttu sér vefmyndavélar Mílu til að fylgjast með flugeldasýningu Íslendinga á gamlárskvöld. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að Míla hafi sett upp vefmyndavélar fyrir áramótin til þess að streyma beint frá áramótunum en vélar voru settar upp í Reykjavík og á Akureyri. Heimsóknir voru víðs vegar að úr heiminum, flestar frá Evrópu og Bandaríkjunum.

„Á hverju ári heimsækja þúsundir ferðamanna Ísland til að fagna nýju ári og upplifa stórkostlega flugeldasýningu Íslendinga. Gestir segja að þennan viðburð ættu allir að upplifa að minnsta kosti einu sinni.

Með þessu framtaki var fólki víðs vegar um heiminn einmitt gert kleift að upplifa flugeldasýningu Íslendinga og sjá nóttu breytast í dag þegar flugeldarnir lýstu upp himininn, þegar nýja árið gekk í garð," segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×