Innlent

Jákvæð teikn á lofti í atvinnumálum þrátt fyrir minni atvinnuþátttöku

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Þrátt fyrir minnkandi atvinnuþáttöku eru jákvæð teikn á lofti en alls hafa fjögur fyrirtæki nýtt sér lög um ívilnanir vegna nýfjárfestinga til að örva atvinnulífið hér á landi og þá eru tíu sambærilegar umsóknir í vinnslu.

Margir tekjustofnar ríkissjóðs veiktust verulega eða hurfu nær alveg í kjölfar hrunsins. Skattahækkanir reyndust því nauðsynlegar til að forða ríkissjóði frá miklu tekjutapi.

Fram kom í erindi Oddnýjar Harðardóttir, fjármálaráðherra, á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í gær að þær breytingar væru nú að mestu yfirstaðnar.

Þetta hljóta að vera góð tíðindi fyrir skattgreiðendur þessa lands sem, miðað við þessi orð fjármálaráðherra, hafa ekki ástæðu til að ætla að skattar hækki mikið meira í náinni framtíð.

Atvinnuleysi mældist 6 prósent í upphafi ársins.

Fram kom í glærukynningu Oddnýjar að nýjustu tölur sýndu að atvinnuleysi væri á niðurleið. Það væri þó enn of hátt og atvinnumál væru og yrðu forgangsmál ríkisstjórnarinnar.

Meðal þess sem ríkisstjórnin hefur gert til að örva atvinnuuppbyggingu eru lög um ívilnanir vegna nýfjárfestinga, en nú þegar hafa fjögur fyrirtæki nýtt sér þau.

Þetta eru álþynnuverksmiðja Becromal á Akureyri, en nú er fyrirtækið að skoða frekari stækkkun. Þá má nefna Kísilmálmverksmiðju Thorsil, en samningaviðræður milli fyrirtækisins og Landsvirkjunar standa nú yfir um orkunýtingu á Norðausturlandi. Hér undir fellur líka kísilmálmverksmiðja Íslenska Kísilfélagsins í Helguvík. Framkvæmdir vegna hennar hafa tafist en hefjast vonandi í vor. Að lokum má hér nefna gagnaver Verne Holdings á Keflavíkurflugvelli, en það tekur formlega til starfa hinn 8. febrúar næstkomandi.

Fjármálaráðherra sagði í gær að nú væru tíu sambærilegar umsóknir í vinnslu, en greindi ekki frá því um hvaða umsóknir væri að ræða.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×