Már í mál við Seðlabanka Íslands Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 11. janúar 2012 18:30
Már Guðmundsson tók við sem seðlabankastjóri í ágúst 2009. Bankaráð sá um að semja um laun við hann og var niðurstaðan sú að hann fengi tæplega 1.575 þúsund krónur á mánuði. Í sama mánuði var lögum um kjararáð breytt þannig að valdið til að ákveða laun ýmissa yfirmanna stofnanna og ríkisfyrirtækja, þar á meðal seðlabankastjóra, var fært yfir til kjararáðs. Þá var einnig kveðið á um það í lögunum eftir breytingu að dagvinnulaun yfirmannanna ættu ekki að vera hærri en föst laun forsætisráðherra sem voru 935 þúsund krónur á mánuði. Í framhaldinu, eða í mars 2010, voru laun seðlabankastjóra lækkuð. Dagvinnulaun hans urðu 862 þúsund krónur á mánuði. Auk þess var ákveðið að greiða honum fasta yfirvinnutíma í hverjum mánuði. Með öllu urðu því launin tæpar 1.266 þúsund krónur og lækkuðu þau því um rúmar 300 þúsund krónur. Í úrskurði kjararáðs frá því í febrúar 2010 um laun seðlabankastjóra má sjá athugasemdir Más. Þar segist hann hafa kynnt sér starfskjör áður en hann sótti um og að lögum um kjararáð hafi verið breytt eftir að gengið var frá ráðningu hans. Már hefur nú stefnt Seðlabanka Íslands til að fá launakjör sín leiðrétt þar sem hann telur þau ekki í samræmi við það sem um var samið. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðasta mánuði en frestur til að skila inn greinagerðum rennur út nú í janúar. Ekki náðist í Má í dag þar sem hann er staddur erlendis. Lára V. Júlíusdóttir formaður bankaráðs Seðlabankans baðst undan viðtali þegar eftir því var leitað og sagði rétt að bíða eftir að dómur félli í málinu.
Mest lesið Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Innlent Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Innlent Íslendingur grunaður um heimilisofbeldi handtekinn í Grikklandi Innlent Sálfræðingar rukka hátt í 26 þúsund krónur Innlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Erlent Alvarlegt vinnuslys í Skagafirði Innlent Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Innlent Þungar áhyggjur af „síversnandi stöðu Íslands“ Innlent Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent Neitar að hitta Pútín án Selenskís Erlent Fleiri fréttir Reyndi að kaupa glás af nammi og kom upp um tíu ára bankaræningja Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Lygilegar tilraunir til að hafa áhrif á sakborning, Reynisfjara og tollar Trumps Olíuleit á teikniborðinu og býst við tíðindum í vetur Smokkamaðurinn enn ófundinn Sjúkrabíllinn bilaður og kemst ekki með sjúkling úr Þakgili Þrír á þaki jeppa á kafi í Jökulsá í Lóni Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Alvarlegt vinnuslys í Skagafirði Undirbúa steypuvinnu fyrir nýju Ölfusárbrúna Þungar áhyggjur af „síversnandi stöðu Íslands“ „Yfirgangur gyðingahataranna er algerlega óþolandi“ Af hættustigi á óvissustig vegna eldgoss Sálfræðingar rukka hátt í 26 þúsund krónur Tollar, höfundarréttur og þögn lögreglu í kynferðisbrotamálum Engin málaferli vegna slyss á Breiðamerkurjökli Tveir skjálftar um 3,3 að stærð Fundur hafinn í utanríkismálanefnd Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Ráðin nýr forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða Íslendingur grunaður um heimilisofbeldi handtekinn í Grikklandi „Norska leiðin“ sé leið Sjálfstæðisflokksins Eigandi bíls fullur af bensínbrúsum handtekinn Tollarnir tilefni til hvorra tveggja örvæntingar og léttis Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Tveir fluttir með þyrlunni og fjórir með sjúkrabíl Vörðuóðir ferðamenn fremji náttúruspjöll Húsvíkingur á Norðurpólnum segir sögu merkustu landkönnuða 20. aldar Þrýstu á yngsta sakborninginn um að taka á sig alla sök Ákvörðun ráðherra muni seinka viðbragði við faröldrum framtíðar Sjá meira
Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent
Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent