Máttu vörslusvipta móður í greiðsluaðlögun Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 14. janúar 2012 18:36
Lýsing var í fullum rétti að beita móður í greiðsluaðlögun vörslusviptingu um miðja nótt - ef marka má nýfallinn úrskurð nefndar hjá Fjármálaeftirlitinu. Nefndin klofnaði í afstöðu sinni, en niðurstaða meirihlutans er sú að heimilisbíll þeirra sem sækja um greiðsluaðlögun er ekki í greiðsluskjóli eins og aðrar eignir. Við sögðum í gær frá tveggja barna móður sem hugðist í gærmorgun keyra börn sín í leik- og grunnskóla en uppgötvar á bílaplaninu að fjölskyldubíllinn, sem var fullur af persónulegum munum, var á bak og burt. Í ljós kom að Lýsing hafði látið fjarlægja bílinn í skjóli nætur. Lýsing er skráður eigandi bílsins en Rós María Oddsdóttir hafði greitt af bílnum í 4 ár þegar hún sótti um greiðsluaðlögun hjá Umboðsmanni skuldara. Eins og segir á heimasíðu Umboðsmanns skuldara er „kröfuhöfum óheimilt að taka við greiðslum vegna skulda.....meðal annars vegna bílakaupalána...." Sem sé - hún má ekki borga. Og þá má kröfuhafi ekki ganga að eigum hennar - um það snýst hið svokallaða greiðsluskjól. En áhöld eru um hvort bílalánið sé leigu- eða lánssamningur. Þegar myntkörfulánin voru dæmd ólögleg í Hæstarétti árið 2010 - var skýrt tekið fram í dóminum að viðkomandi bílalán væri lánssamningur - klæddur í búning leigusamnings eins og það var orðað. Eftir því sem fréttastofa kemst næst hefur aðeins einn formlegur úrskurður fallið um sambærilegt mál - hjá Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki hjá Fjármálaeftirlitinu, nú rétt fyrir jól. Fréttastofa fékk afrit af úrskurðinum - sem hefur ekki verið birtur. Nefndin klofnaði, þrír af fimm nefndarmönnum telja að bílalánafyrirtæki hafi mátt taka bíl af manni í greiðsluaðlögun, í stuttu máli vegna þess að fyrirtækið er „skráður eigandi bílsins". Tveir af fimm skila hins vegar séráliti og komast að þveröfugri niðurstöðu að bílalánafyrirtækið sé „í raun ekki eigandi bifreiðar, heldur lánveitandi" og því „óheimilt" að taka bílinn af manni í greiðsluaðlögun. Því virðist nokkuð ljóst, að viðkomandi lagaákvæði, eða bílasamningar, eru ekki mjög ljósir.
Mest lesið Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Komið að ögurstundu Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira