Innlent

Stríðsbrúðurin: Dóttir Larrys og ættleidd systir hittust á kaffihúsi

Ragna Esther og Larry Gavin þegar þau voru enn hamingjusöm.
Ragna Esther og Larry Gavin þegar þau voru enn hamingjusöm.
Patti Allen og Melissa Gavin hittust á dögunum á kaffihúsi. Það var ekki fyrr en fyrir skömmu sem þær komust að tilvist hvorrar annarrar. Faðir Melissu er Larry Gavin, sem var giftur íslensku konunni, Rögnu Esther Sigurðardóttir, sem hvarf á dularfullan hátt árið 1951.

Málið hefur vakið mikla athygli hér á landi eftir að fréttastofa RÚV greindi frá því síðasta sumar. Þá hefur bandaríska blaðið The Oregonian fjallað af krafti um málið og leiddi nú síðast til þess að afkomendur Larrys komust að því að hann hefði gift sig á ný.

Fjölskylda Rögnu Estherar hér á landi hefur ávallt leitað hennar frá því hún hvarf í byrjun sjötta áratugarins á síðustu öld. Þau komust að því að börn Rögnu Estherar voru ættleidd. Hún átti tvö börn, Debru og Robert. Eins og greint hefur verið frá barðist Ragna Esther fyrir börnum sínum í réttarkerfinu í Bandaríkjunum. Hún tapaði að lokum og voru börnin þá ættleidd. Debru var hinsvegar skilað aftur af fjölskyldunni sem ættleiddi hana, þar sem hún virðist hafa verið með væga þroskahömlun. Hún lést árið 1999.

Sama ár og Ragna tapaði forræðismálinu hvarf hún sporlaust. Sumir telja að Larry sé ábyrgur fyrir hvarfi hennar, en hann misþyrmdi henni með hrottalegum hætti þegar þau voru gift.

Robert, sonur Rögnu, er enn á lífi og er fjölskylda Rögnu Estherar vongóð um að fá að hitta hann. Patti er ættleidd systir þeirra tveggja.

Hún hitti Melissu til þess að sýna henni myndir af bróður sínum og Debru.

Á kaffihúsinu ræddu konurnar íslensku fjölskylduna hennar Rögnu Estherar. „Fjölskyldan á Íslandi er forgangsatriði hjá mér," sagði Melissa við Patti og bætti við að hún óskaði þess eins að þau gætu fundið hamingjuna. Patti tók undir orð Melissu og sagðist vilja gera þeim kleyft að gera þetta dularfulla mál upp.

Hægt er að nálgast umfjöllun The Oregonian hér




Fleiri fréttir

Sjá meira


×