Sigurður Ragnar: Eigum helmingsmöguleika Henry Birgir Gunnarsson skrifar 22. september 2012 09:00 vonandi enginn snjór Landsliðsþjálfarinn vonar að það þurfi ekki að moka völlinn fyrir leik eins og síðast.fréttablaðið/daníel
Stelpurnar okkar þurfa að fara Krýsuvíkurleiðina á EM 2013 en það varð ljóst er liðið tapaði gegn Noregi ytra í vikunni. Þær þurfa að fara í umspil til þess að komast inn á mótið og var dregið í það í gær. Þar dróst Ísland gegn sterku liði Úkraínu. Leikirnir fara fram í lok október og á Ísland seinni leikinn heima. „Þetta leggst ágætlega í mig. Ég veit ekkert of mikið um þær núna. Þetta lið fór þó síðast í lokakeppni EM og stóð sig vel þar og vann Finnland. Þær unnu útileiki sína í undankeppninni en misstigu sig á heimavelli," sagði landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson um væntanlegan mótherja í umspilinu. Ísland hefði einnig getað dregist gegn Austurríki og Skotlandi og Úkraínu var því líklega ekki neinn happadráttur. „Úkraínska liðið hefur farið í lokakeppni ólíkt hinum liðunum. Þetta er líka lengsta ferðalagið. Ég veit samt ekki hvort þetta sé besta liðið. Þessi þrjú lið eru líklega mjög svipuð. Ég myndi segja að við ættum helmingsmöguleika á því að komast inn á EM." Úkraínska liðið er meira og minna skipað leikmönnum sem spila í heimalandinu og í Rússlandi. „Þær eru með einn leikmann sem skorar mikið rétt eins og við eigum einn þannig. Svo á ég eftir að sjá leiki með þeim til þess að geta metið liðið betur. Fyrir fram stefnir þó í mjög jafna og erfiða leiki," sagði Sigurður sem er þó ánægður með að eiga seinni leikinn á heimavelli. „Það er plús. Ekki spurning. Mér finnst það alltaf betra. Vita hvað við þurfum að gera og vonandi fá góðan stuðning til þess þó svo veðrið verði líklega ekkert sérstakt þegar leikurinn fer fram," sagði Sigurður og hló við en síðast er stelpurnar léku í umspili þurfti að moka snjó af vellinum fyrir leik. „Vonandi gerist það ekki aftur."
Fótbolti Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Fleiri fréttir Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Brentford - Tottenham | Lundúnaslagur í fyrstu umferð HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Sjá meira