Földu barnið í bílskúrnum 22. september 2012 00:15 Leitað var á heimili foreldra drengsins vegna gruns um annað lögbrot. nordicphotos/AFP
Fjögurra ára drengur fannst illa haldinn í bílskúr foreldra sinna. Alla ævi hafði hann varla komist út undir bert loft og kunni ekki einu sinni að leika sér. Foreldrar fjögurra ára gamals drengs eiga yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi fyrir vanrækslu. Þau höfðu falið barnið fyrir umheiminum frá fæðingu, að mestu án þess að fara með það út fyrir hússins dyr og án samskipta við annað fólk, með þeim afleiðingum að drengurinn er fölur og vöðvarýr, kann ekki að leika sér og varla að tala almennilega. Lögreglan fann drenginni í bílskúr fjölskyldunnar í Helsingjaeyri í ágúst og færði hann strax í umsjón annarra. Ekki er raunar fullvíst að drengurinn sé fjögurra ára, því hvergi eru til nein skjöl um fæðingu hans. Aldurinn hafa sérfræðingar metið meðal annars út frá sverleika beina hans. Sex eldri börn foreldranna, þrír drengir og þrjár stúlkur, voru tekin frá þeim vegna vanrækslu fyrir tæpum áratug. Foreldrarnir hafa árum saman barist gegn þeirri ákvörðun og hafa komið oft fram í dönskum fjölmiðlum til að gagnrýna barnaverndaryfirvöld. Heimildarmynd var gerð um mál þeirra árið 2003. „Barninu hefur verið haldið innandyra allt sitt líf,“ er haft eftir Bjarne Pedersen, bæjarritara á Helsingjaeyri, á fréttasíðum danska ríkisútvarpsins. „Það virðist hafa verið lítill, lokaður garður sem hann fékk leyfi til að fara út í, en foreldrarnir vildu ekki tala við okkur svo við fengum ekki að vita meira.“ Samkvæmt lögreglunni virðist barnið ekki hafa orðið fyrir líkamlegu tjóni, en Pedersen segir augljóst að hann þurfi á mikilli aðstoð að halda: „Ég er kominn út að mörkum þess sem ég má segja, en reynið að ímynda ykkur barn sem hefur ekki lært að leika sér – það hefur líka eitthvað með tal barnsins að gera.“ Ástæða þess að drengurinn fannst nú var að lögregla gerði húsleit á heimili fjölskyldunnar vegna annars máls, þar sem þau eru grunuð um lögbrot. Þau eiga einnig yfir höfði sér málaferli vegna þess máls. Fyrir tveimur árum hafði nágranni hjónanna haft samband við yfirvöld og tilkynnt að hann teldi barn vera á heimilinu. Því máli var ekki fylgt eftir, en svo virðist sem þá hefði verið hægt að koma drengnum til hjálpar. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Vonda veðrið færist í borgina og á Suðurland Veður „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Innlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Innlent Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Erlent Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Innlent Fleiri fréttir Umfagnsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Einn látinn eftir alvarlegt lestarslys í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Sjá meira