Íbúum brugðið eftir íkveikjur Erla Hlynsdóttir skrifar 21. desember 2012 19:01
Kona hefur játað að hafa í tvígang kveikt í sameign íbúðarhúss við Maríubakka. Jólaundirbúningur íbúanna hefur einkennst af ótta og eiga börnin erfitt með að skilja það sem átt hefur sér stað. Aðkoman var vægast sagt hrikaleg í kjallara hússins þar sem í nótt var kveikt í geymslu. Í allan dag verið unnið hörðum höndum að koma eigum fólks í öruggt skjól. Íkveikjurnar hafa haft mikil áhrif á sálarlíf íbúanna. Fólki hlýtur að hafa verið afskaplega brugðið? „Mjög svo, þetta er ekki það sem fólk á von á svona rétt fyrri jólin. Þetta er bara skelfilegt," segir Þorvaldur Sturluson, íbúi við Maríubakka. Fyrri íkveikjan var á aðfararnótt þriðjudags þegar konan bar eld að blöðum í ruslageymslunni. „það kviknaði í þeim og eiturgufur bárust upp með ruslastokknum. Þetta var bara hættulegt," lýsir Þorvaldur. Einn var þá fluttur á sjúkrahús vegna gruns um reykeitrun. Þegar okkur bar að garði var verið að múra ruslageymsluna. Eftir báðar íkveikjurnar söfnuðust allir íbúar saman fyrir utan húsið og biðu eftir slökkviliðinu. Fjölskyldufólk býr í blokkinni, „en þau vissu ekkert hvað var að gerast. Þetta var mjög óþægilegt," segir Þorvaldur um aðstæður þegar eldsvoðinn kom upp. Það var síðan seinnipartinn í dag sem kona játaði að hafa kveikt í sameigninni í bæði skiptin. Ekki er vitað hvað konunni gekk.
Mest lesið Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Innlent Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Erlent Maður féll í Vestari-Jökulsá Innlent Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Innlent Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Innlent Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Erlent Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Erlent Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Innlent Fleiri fréttir Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Enginn handtekinn eftir hópslagsmálin Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Finna áhugann dvína á meðan vinir berjast og deyja á vígvellinum „Það fer enginn lífvörður út í“ Reyndi að kaupa glás af nammi og kom upp um tíu ára bankaræningja Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Lygilegar tilraunir til að hafa áhrif á sakborning, Reynisfjara og tollar Trumps Olíuleit á teikniborðinu og býst við tíðindum í vetur Smokkamaðurinn enn ófundinn Sjúkrabíllinn bilaður og kemst ekki með sjúkling úr Þakgili Þrír á þaki jeppa á kafi í Jökulsá í Lóni Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Alvarlegt vinnuslys í Skagafirði Sjá meira