Ekki hæfur til að leiða alþjóðlegt fyrirtæki 2. maí 2012 02:00 Rupert murdoch Hart hefur verið deilt á Murdoch en hann er eigandi News Corp sem gaf meðal annars út News of the World. nordic photos/afp
Rupert Murdoch er ekki hæfur til að leiða alþjóðlegt stórfyrirtæki. Þetta er niðurstaða menningarmálanefndar breska þingsins sem rannsakað hefur umdeilt hlerunarmál News of the World. Nefndin var skipuð í júlí 2011 eftir að upp komst að breska slúðurblaðið hefði við fréttaöflun hlerað síma hjá fólki, þar á meðal hinni 13 ára gömlu Milly Dowler og fjölskyldu hennar, en hún fannst myrt þann 18. september árið 2002. Nefndin komst meðal annars að því að Murdoch var vel meðvitaður um það sem fram fór hjá blaðinu en „kaus að horfa fram hjá því“. Nefndin fékk vitnisburð meðal annars hjá fyrrverandi blaða- og yfirmönnum News of the World sem og lögreglumönnum og lögfræðingum fólks sem blaðið njósnaði um. Nefndin klofnaði að vísu þar sem fjórir íhaldsmenn, af tíu nefndarmönnum, gerðu athugasemdir við niðurstöðuna og sögðu hana byggja á flokkapólitík. Sex fulltrúar Verkamannaflokksins og Frjálslyndra demókrata studdu hana hins vegar. Íhaldsmaðurinn Louise Mensch lýsti skýrslunni sem „mikilli skömm“ og að „trúverðugleiki“ hennar hefði skaðast. Nefndin sjálf hefur ekki leyfi til að að aðhafast neitt frekar í málinu. News Corp, útgáfufélag The News of the World, sagðist í tilkynningu vera að fara yfir niðurstöðu skýrslunnar og hygðist svara henni innan skamms en bætti við að fyrirtækið væri vel meðvitað um að starfsmenn blaðsins hefðu haft rangt við og að það bæði þá sem brotið var á afsökunar. - kh
Mest lesið Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Innlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Fleiri fréttir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Sjá meira