Erlent

Nær 9.000 manns skipað að yfirgefa Wagga Wagga

Mikil flóð hafa valdið því að nær 9.000 manns hefur verið skipað að yfirgefa bæinn Wagga Wagga í New South Wales í Ástralíu.

Úrhelli dögum saman hefur valdið miklum flóðum í þremur ríkjum Ástralíu sem þegar hafa kostað tvö mannslíf. Áin Murrumbidgee rennur framhjá Wagga Wagga en vegna mikilla vatnavaxta í henni er óttast að flóðavarnir við bæinn muni gefa sig á næstunni.

Julia Gillard forsætisráðherra Ástralíu segir að her landsins sé í viðbragðstöðu og muni veita aðstoð ef ástandið versnar enn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×