Erlent

Einn látinn eftir skotárás í skóla

Frá vettvangi í Ohio í dag.
Frá vettvangi í Ohio í dag. mynd/AP
Einn lést og fjórir særðust í skotárás í grunnskóla í Ohio í Bandaríkjunum fyrr í dag. Vígamaðurinn var samnemandi fórnarlambanna.

Samkvæmt Alríkislögreglunni í Bandaríkjunum hóf pilturinn skotárás í matsal skólans. Hann flúði síðan af vettvangi en gaf sig fram stuttu seinna.

Ekki er vitað hvert tilefni skotárásarinnar var.

Hinir særður voru fluttir á sjúkrahús í Cleveland.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×