Hvarflaði aldrei að Spáni að slá Ítalíu út Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 1. júlí 2012 15:00 Xavi á blaðamannfundinum í gær MYND: NORDIC PHOTOS/GETTY
Spánn hefði getað slegið Ítalíu út úr Evrópumeistaramótinu í Úkraínu og Póllandi með því að gera 2-2 jafntefli við Króatíu í síðustu umferð C-riðils. Spánn vann leikinn 1-0 og vann þar með riðilinn og Ítalía náði öðru sætinu á kostnað Króatíu. Spánn og Ítalía mætast í úrslitaleik EM í kvöld klukkan 18:45. Miðjumaðurinn Xavi Herandez var spurður út í það hvort liðið sæi eftir því að hafa ekki samið um 2-2 jafntefli við Króatíu og losað sig við Ítalíu úr keppninni á blaðamannafundi í gær. „Fjöldi fólks hefur spurt okkur út í þetta en eins og þjálfarinn sagði þá sér maður aldrei eftir neinu ef maður spilar til sigurs. Þetta hvarflaði aldrei að okkur og við munum ekki leiða hugann að því þó við töpum," sagði Xavi. „Ítalir leika ekki eins og þeir gerðu áður. Lykillinn að sigri í úrslitaleiknum verður að halda boltanum og það vilja bæði lið gera. Þeir eru með frábært lið," sagði Xavi ennfremur. Xavi er 32 ára og hefur unnið allt sem í boði er með knattspyrnuliðum sínum; Spáni og Barcelona, en hann hefur áður látið hafa eftir sér að hann hafi óttast það að deyja út sem knattspyrnumaður á árum áður þegar fótboltinn stefndi í að verða leikur þar sem líkamlegir yfirburðir réðu úrslitum. „Mér finnst ég heppinn. Fyrir nokkrum árum stefndi leikurinn í að verða mun harðari, leikur þar sem varnarleikur og leikskipulag réðu úrslitum. Við höfum verið heppnir með það að leikmenn sem ekki hafa verið eins sterkir líkamlega hafi slegið í gegn og nú reyna lið frekar að leika opinn fótbolta sem er bæði fallegri og glaðari. Það hefur verið gott fyrir mig og er gott fyrir Pirlo. Flestir okkar leikmanna og leikmenn ítalska liðsins leika þannig fótbolta," sagði Xavi.
Mest lesið Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Heilbrigðisráðherra lætur óvin Íslands heyra það Handbolti Óvinur Íslands: „Aldrei stríða heilu landi“ Handbolti Þetta er ástæða þess að Ísland er í efsta sæti í milliriðlinum Handbolti Dramatísk úrslit og vonir beggja liða nánast úr sögunni Handbolti Ótrúleg saga Viggós rifjuð upp í erlendum miðlum Handbolti Stærð sigurs Íslands gegn Svíum veki upp spurningar Handbolti Dregur til baka ummæli sín um Gísla Þorgeir Handbolti Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Handbolti Svíar furðu lostnir og of næs: „Létu pakka sér saman“ Handbolti Fleiri fréttir Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Kristall snýr aftur „þroskaðri og fullorðnari“ Sagðir borga 200 milljónir fyrir Kristal Mána Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Hákon í leikbanni og Lille steinlá á heimavelli Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjáðu Yamal skora „besta mark tímabilsins“ Tókst bara að jafna gegn tíu mönnum í toppslagnum Logi skoraði sjálfsmark í sigri Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Heiðdís leggur skóna á hilluna Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Ásdís Karen lagði upp í öruggum sigri gegn botnliðinu Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Sjá meira