Umfjöllun: Spánn - Ítalía 4-0 | Spánn Evrópumeistari Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 1. júlí 2012 13:38 Nordicphotos/Getty
Spánn sigraði Ítalíu 4-0 í úrslitaleik Evrópumeistaramótsins í kvöld og varð þar með fyrsta þjóðin til að vinna tvö Evrópumeistaramót í röð. Spánn sýndi allar sínar bestu hliðar í leiknum og var 2-0 yfir í hálfleik. Spánverjar hófu leikinn af miklum krafti og voru mjög beinskeyttir strax í byrjun. David Silva skoraði á 14. mínútu og áður en fyrri hálfleikur var allur hafði Jordi Alba bætt við marki. Hafi Ítalía átt einhverja von hvarf hún þegar varamaðurinn Thiago Motta þurfti að fara meiddur af leikvelli þegar enn var um hálftími eftir af leiknum en þá höfðu Ítalir notað allar þrjár skiptingar sínar. Fernando Torres og Juan Mata, leikmenn Chelsea á Englandi, gerðu út um leikinn með tveimur mörkum á fjögurra mínútna kafla þegar skammt var eftir og gulltryggðu sanngjarnan sigur. Spánn skoraði tólf mörk og fékk á sig eitt í keppninni. Ítalía skoraði gegn Spáni í fyrstu umferð en eftir það hélt Casillas markinu hreinu. Ótrúlegir yfirburðir Spánar í mótinu fengust staðfestir með þessum stórsigri í úrslitaleiknum. Ljóst er að Spánn hefur á að skipa besta liði Evrópu aðra keppnina í röð. Liðið hefur nú unnið þrjú stórmót í röð.88. mín. Chelsea félagarnir Torres og Mata að koma Spáni í 4-0. Torres sýndi ótrúlega óeigingirni að senda boltann á Mata sem var í betra færi en Mata var nýkominn inná sem varamaður. 84. mín. Fernando Torres er fyrsti leikmaðurinn til að skora í tveimur úrslitaleikjum EM í röð. Hann var að gulltryggja sigur Spánar með laglegri afgreiðslu eftir sendingu Xavi sem var að leggja upp sitt annað mark í keppninni, bæði í úrslitaleiknum. 62. mín. Enn syrtir í álinn hjá Ítölum því Thiago Motta þurfti að fara meiddur af leikvelli aðeins fimm mínútum eftir að hann kom inná sem varamaður en hann var þriðja og síðasta skiptin Ítalíu í leiknum. Ítalir verða því einum færri það sem eftir lifir leiks ef Motta getur ekki komið aftur inná. 48. mín. Spánn byrjar seinni hálfleikinn af krafti og munaði minnstu að liðið kæmist í 3-0. Það bendir ekkert til þess að Spánn ætli að hanga á forystunni. 41. mín. Spánverjar eru að undirstrika að þeir séu besta lið í heimi strax í fyrri hálfleik. Jordi Alba að skora annað mark Spánar sem eru að yfirspila Ítalíu. Xavi átti frábæra stungusendingu á bakvörðinn sem var kominn fremstur og kláraði færið eins og margreyndur framherji. 29. mín. Fyrsta færi Ítala. Cassano með skot sem fer beint á Casillas.25. mín Spánverjar enn sterkari aðilinn í leiknum og eru mjög beinskeyttir í sínum aðgerðum þó Ítalir séu að komast aðeins meira inn í leikinn.15. mín Spánverjar komast sanngjarnt yfir. Cesc Fabregas lék upp að endalínunni hægra megin í vítateignu, sendi boltann fyrir markið þangað sem David Silva var mættur og stangaði boltann í markið. Frábært mark og Evrópumeistararnir komnir yfir.5. mín Spánverjar miklu sterkari aðilinn fyrstu mínúturnar. Spánverjar og Ítalir mættust í riðlakeppninni og skildu jöfn 1-1. Spánverjar eiga Evrópumeistaratitil að verja og gætu orðið fyrsta þjóðin til að verja titil sinn. Hér fyrir neðan birtast sjálfkrafa allar helstu upplýsingar um framvindu leiksins sem og leikmannahópa liðanna.
Tengdar fréttir Torres fær gullskóinn Fernando Torres varð markakóngur Evrópumeistaramótsins í Póllandi og Úkraínu með þrjú mörk en hann skoraði þriðja mark Spánar gegn Ítalíu í kvöld eftir að hafa komið inná sem varamaður. Torres lagði auk þess fjórða markið upp sem Juan Mata skoraði. 1. júlí 2012 21:40 Del Bosque: Ætlaði ekki að vera sigursæli þjálfarinn Vicente Del Bosque, landsliðsþjálfari Spánverja, var hógværðin uppmáluð eins og venjulega í leikslok þrátt fyrir að Spánn hefði skráð sig á spjöld knattspyrnusögunnar á fleiri enn einn hátt. 1. júlí 2012 22:18 Del Bosque jafnaði afrek Helmut Schön Vicente del Bosque þjálfari Spánar er fyrsti þjálfarinn til að stýra liði til sigurs á Evrópumeistaramóti og Heimsmeistaramóti frá því að Helmut Schön afrekaði það með Vestur-Þýskalandi á EM 1972 og HM 1976. 1. júlí 2012 21:45 Mest lesið „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Fótbolti Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Fótbolti Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Fótbolti Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Fótbolti Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Fótbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Fleiri fréttir Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann „Það ruglaður að manni finnst maður alltaf bestur“ Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Þrjú félög örugg með að eignast nýjan heimsmeistara Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Fylkismenn kláruðu Njarðvíkinga fyrir hlé „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Tveir öflugir Spánverjar æfðu ekki með restinni af liðinu Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Harður gagnrýnandi Trumps við hlið hans á úrslitaleik HM Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Bríet Fjóla keypt til Þróttar Blatter baunar aftur á FIFA: „Lengsta hlé í sögu fótboltans“ Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Svarar Romero fullum hálsi: „Veit um hvað ég er að tala“ Yngri bróðir með frábæra ferilskrá tekur slaginn með KA Bowen heldur tryggð eftir fallið Loftgæðin hættuleg leikmönnum Heimsmeistarar fá hring Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Sjá meira
Torres fær gullskóinn Fernando Torres varð markakóngur Evrópumeistaramótsins í Póllandi og Úkraínu með þrjú mörk en hann skoraði þriðja mark Spánar gegn Ítalíu í kvöld eftir að hafa komið inná sem varamaður. Torres lagði auk þess fjórða markið upp sem Juan Mata skoraði. 1. júlí 2012 21:40
Del Bosque: Ætlaði ekki að vera sigursæli þjálfarinn Vicente Del Bosque, landsliðsþjálfari Spánverja, var hógværðin uppmáluð eins og venjulega í leikslok þrátt fyrir að Spánn hefði skráð sig á spjöld knattspyrnusögunnar á fleiri enn einn hátt. 1. júlí 2012 22:18
Del Bosque jafnaði afrek Helmut Schön Vicente del Bosque þjálfari Spánar er fyrsti þjálfarinn til að stýra liði til sigurs á Evrópumeistaramóti og Heimsmeistaramóti frá því að Helmut Schön afrekaði það með Vestur-Þýskalandi á EM 1972 og HM 1976. 1. júlí 2012 21:45