Skipulagðar aftökur í Sýrlandi 26. ágúst 2012 12:48 Stuðningsmenn Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, með fána og veifur. Mynd/AFP
Uppreisnarmenn í Sýrlandi segja að hundruð líka hafi fundist í bæ í nágrenni höfuðborgarinnar Damaskus. Saka þeir stjórnarhermenn um fjöldamorð og segja greinilegt að margir hinna látnu hafi verið teknir af lífi með skipulögðum hætti. Óstaðfestar fregnir herma að um tvöhundruð lík hafi fundist á heimilum og í kjöllurum húsa. Stjórnvöld hafa ekki svarað ásökunum uppreisnarmanna en segja að bærinn sem um ræðir, Darayya, hafi verið hreinsaður af hryðjuverkamönnum, eins og það er orðað. Hermenn Bashar al-Assad forseta réðust á bæinn í gær eftir að sprengjum hafði verið látið rigna á hann síðustu vikur. Fréttaritari BBC í Beirút segir að árásin á bæinn sé hluti af stærri sókn sem miðar að því að ná aftur tökum á úthverfum Damaskus í suðri þar sem uppreisnarmenn hafa verið að ná vopnum sínum eftir að hafa verið flæmdir úr höfuðborginni fyrir mánuði. Andófsmennirnir segja að mörg líkanna séu með skotsár á höfði og brjósti og að greinilegt að fólkið hafi verið tekið af lífi þegar stjórnarhermenn fóru hús úr húsi í bænum. Yfirmaður sendinefndar Sameinuðu þjóðanna, hershöfðinginn Babacar Gaye yfirgaf Sýrland í gær en í síðustu viku afréðu Sameinuðu þjóðirnar að framlengja ekki veru eftirlitsmannanna sem verið hafa í landinu síðustu mánuði.
Mest lesið Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Innlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Erlent Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Innlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Innlent Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Innlent Fleiri fréttir Sextán látin: Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Óvinafögnuður Trumps og Pútíns Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Sjá meira