Erlent

Framandi spendýr ógna náttúru Evrópu

Þvottabjörn.
Þvottabjörn. mynd/AFP
Innreið spendýra á borð við villisvín, þvottabirni, bjór og snáldurmýs í Evrópu er mun umfangsmeiri en áður var talið.

Frá nýsteinöld hafa rúmlega sjötíu tegundir reynt að koma sér fyrir í Evrópu - af þeim hafa þrjátíu tegundir dreift sér þvert yfir álfuna.

Þetta kemur fram í rannsóknarniðurstöðum vísindamanna í Ítalíu. Í niðurstöðum þeirra kemur fram að innreið spendýranna komi til með að hafa afar slæm áhrif á bæði mannfólk og umhverfi og er hætta að þessi flökkudýr skaði líffræðilegan fjölbreytileika Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×