Danir vildu heldur horfa á Matador en fótboltalandsliðið í beinni 11. september 2012 06:25
Í ljós er komið að Danir vildu heldur horfa á margendursýnda sjónvarpsþáttaröð en hetjurnar sínar í danska landsliðinu í fótbolta í landsleik á móti Tékkum um síðustu helgi. Leikurinn endaði með jafntefli. Um er að ræða sjónvarpsþættina Matador sem danska ríkissjónvarpið sýnir nú í sjöunda sinn frá því að þættirnir komu fyrst fyrir augu Dana árið 1978. Matador var sýndur á sama tíma og danska landsliðið í fótbolta var í beinni útsendingu á TV2 í fyrsta leik sínum í undankeppninni fyrir heimsmeistaramótið á þarnæsta ári. Danir vildu heldur fylgjast með Mads Skjern. Misse Möghe og grisehandler Larsen en þeim Agger, Kjær og Cornelius. Raunar munar töluvert á áhorfendafjöldanum því tæplega 850.000 Danir horfðu á fótboltaleikinn en tæplega milljón þeirra fylgdust með lífinu í smábænum Korsbæk í Danmörku á millistríðsárunum á síðustu öld. Matador er langvinsælasta sjónvarpsefni sem búið hefur verið til í Danmörku. Raunar setti Matador met í sjónvarpsáhorfi árið 1985. Met sem seint verður slegið þar sem um fyrstu endursýninguna var að ræða. Þá horfðu yfir 3,6 milljónir Dana á einn af þáttunum. Þetta telst eindæmi þar sem Danir voru um 5 milljónir talsins það ár.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Sjá meira