Ein byssa var notuð við morðin í Frakklandi 11. september 2012 08:00 Sprengjuleitarlið breska hersins fyrir utan heimili fjölskyldunnar í Claygate. nordicphotos/AFP
Franska lögreglan hefur upplýst að aðeins ein byssa hafi verið notuð þegar fjölskylda frá Bretlandi var myrt þar sem hún var á ferðalagi á bifreið sinni í Frakklandi í síðustu viku. Enn er ekkert vitað um ástæðu morðanna. Breska lögreglan hefur leitað að vísbendingum á heimili fjölskyldunnar í Claygate, litlum bæ rétt hjá London. Í gær var sprengjuleitarsveit breska hersins kölluð á staðinn og voru hús í næsta nágrenni rýmd á meðan. Stuttu síðar var hættuástandi aflétt, en lögreglan sagði að nokkrir hlutir sem fundust í húsinu hefðu vakið áhyggjur. Sjö ára dóttir myrtu hjónanna vaknaði úr dái á sunnudag en hafði ekki verið yfirheyrð í gær. Fjögurra ára systir hennar er komin til Bretlands, en hún gat litlar upplýsingar gefið. Franska lögreglan hefur staðfest að 74 ára kona, sem var meðal hinna myrtu, hafi verið tengdamóðir fjölskylduföðurins og amma stelpnanna. Hún var með sænskan ríkisborgararétt en ættuð frá Írak eins og aðrir úr fjölskyldunni. Auk foreldra og ömmu stúlknanna var franskur hjólreiðamaður myrtur, en hann virðist hafa af tilviljun átt leið fram hjá þegar morðin voru framin. - gb
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Sjá meira