Innlent

Umræðan bjöguð ef satt reynist

Björn Valur Gíslason
Björn Valur Gíslason
Björn Valur Gíslason, fulltrúi Vinstri grænna í atvinnuveganefnd, segir að greinargerð sjávarútvegsráðuneytisins um útreikninga Deloitte á áhrifum frumvarpa um stjórn fiskveiða eigi fullan rétt á sér og það sé sitt mat að útreikningar endurskoðunarfyrirtækisins séu settir fram með villandi hætti af ráðnum hug.

„Ég er þeirrar skoðunar, eftir að hafa fundað með þeim og séð þeirra umsagnir og gögn, að framsetning fyrirtækisins sé blekkjandi. Þetta er ekki síst alvarlegt í því ljósi að þeir sem hafa veitt umsögn byggja á röngum gögnum. Öll umfjöllunin um málið, byggð á þeim umsögnum, er því markleysa. Svo er hitt, að sjálfsögðu, að þá hlýtur þetta að vera stór áfellisdómur yfir endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte. Ég minni á stór orð um ábyrgð slíkra fyrirtækja í kjölfar hrunsins og að menn ætluðu ekki að brenna sig á þessu sama aftur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×