Skattleggja hagnað en lækka skatt á laun 13. desember 2011 09:00 Mynd/GVA
Fjársýsluskattur á lífeyrissjóði verður felldur út úr frumvarpi fjármálaráðherra um ráðstafanir í ríkisfjármálum, bandorminum svokallaða. Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar samþykkti umfangsmiklar breytingar á frumvarpinu í gærkvöld. Það verður til umræðu á þingi í dag. Þá verður fjársýsluskattur á laun starfsmanna fjármálafyrirtækja lækkaður um tæpan helming, úr 10,5 prósentum í 5,45 prósent. Þess í stað verður lagður sérstakur sex prósenta tekjuskattur á hagnað fjármálastofnana umfram einn milljarð. Helgi Hjörvar, formaður nefndarinnar, segir að þetta lækki tekjur ríkissjóðs á rekstrargrunni en hafi ekki áhrif á greiðslugrunn ársins 2012, en við hann miðast efnahagsáætlanir ríkisstjórnarinnar. Mörkin á milli fyrsta og annars þreps í almennum tekjuskatti hækka um 9,8 prósent samkvæmt tillögunum, en ekki 3,5 prósent líkt og gert var ráð fyrir í frumvarpinu. Mörkin fyrir annað þrep verða 230 þúsund krónur. Mörk þriðja þreps verða óbreytt, 704 þúsund krónur. Reiknað er með að þessi breyting skili ríkissjóði 300 milljóna króna lægri tekjum. Þá er gert ráð fyrir að framlengja um þrjá mánuði heimild til úttektar á séreignarsparnaði frá því sem frumvarpið kvað á um. „Við gerum ráð fyrir því að viðbótartekjur af þeirri framlengingu muni skila svipuðum tekjum og tekjutapið vegna hækkunar neðra skattþrepsins," segir Helgi. Gildistími auðlegðarskatts verður styttur til samræmis við gildistíma gjaldeyrishafta og rennur hann út í árslok 2013. Helgi segir að nefndin hafi talið skynsamlegt að skoða þetta tvennt í samhengi. Hann segir það mat fjármálaráðuneytisins að breytingarnar hafi ekki áhrif á greiðslugrunn fjárlaganna.- kóp
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira