Carragher: Voru afar erfiðir átján mánuðir Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. febrúar 2011 10:09 Gerrard og Carragher. Nordic Photos / Getty Images
Jamie Carragher hefur lýst því í samtali við enska fjölmiðla hvernig hann upplifði síðustu átján mánuðina hjá Liverpool áður en að Kenny Dalglish tók við stjórn liðsins í síðasta mánuði. Það gekk mikið á hjá Liverpool á þeim tíma. Liðið komst ekki í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu, varð í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar og Rafael Benitez hætti svo hjá félaginu eftir að síðasta tímabili lauk. Roy Hodgson tók við starfi hans en liðinu gekk enn verr undir hans stjórn. Þá var einnig skipt um eigendur en ekki batnaði frammistaðan inn á vellinum. Það var ekki fyrr en að Dalglish tók við að það fór loksins að birta til hjá félaginu og hefur Liverpool verið duglegt að safna stigum í sarpinn að undanförnu og klifra upp töfluna. „Það hefur verið mjög erfitt að koma aftur heim undanfarna átján mánuði eftir leiki þar sem við stóðum okkur ekki vel," sagði Carragher. „Þetta hefur verið erfitt fyrir alla - stuðningsmenn, vini og ættingja. Það er bara mjög gott að þessi tími sé að baki og þar sem við höfum verið að standa okkur betur er ekki þessi sama pressa og við þurftum að búa við áður." „Margir eru byrjaðir að tala um efstu fjögur sætin en ég segi bara að ég er ánægður með að við séum byrjaðir að vinna leiki og getum komið heim með bros á vör - án þess að þurfa áhyggjur af töflunni." Dalglish náði frábærum árangri með liðið bæði sem leikmaður og knattspyrnustjóri en hann er nú að stýra liðinu í annað sinn á ferlinum. „Nærvera hans ein og sér styrkir allt félagið, leikmenn og stuðningsmenn þess. Við gerðum jafntefli við Wigan á heimavelli á laugardaginn. Við spiluðum ekkert allt of illa en fyrir fjórum mánuðum hefðu viðbrögðin eftir þann leik verið allt öðruvísi en þau voru í raun." „Það segir mikið um hvað Kenny hefur gert fyrir okkur og hvernig hann hefur náð stuðningsmönnunum á okkar band. Við þurfum enn að bæta okkar leik en og ég er viss um að stjórinn mun nota sumarið í að gera það."
Mest lesið Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Bakgarðsáskorun: Stefnir hátt í síðasta Bakgarðshlaupinu sínu Sport Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Mun skilja sál mína eftir í búrinu“ Sport „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira