Loftárásir hafnar á Líbíu 19. mars 2011 21:24 112 Tomahawk flaugum hefur verið skotið á líbísk skotmörk. Mynd/ afp
Hundruðum flugskeyta hefur í kvöld verið skotið á valin skotmörk í Líbýu af herliði Bandaríkjamanna, Breta og Frakka. Aðgerðirnar eru með það að markmiði að framfylgja flugbanni yfir landinu sem samþykkt var í öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna en fyrr í dag bárust af því fregnir að herlið einræðisherrans Gaddafís hefði gert árás á vígi uppreisnarmanna í borginni Benghazi, þrátt fyrir að hafa lýst yfir vopnahléi í gær. Þá hafa sprengjuflugvélar vesturveldanna einnig varpað sprengjum á skotmörk í höfuðborginni Trípólí að því er fram kemur á fréttastöðinni AFP. Breska varnamálaráðuneytið hefur einnig gefið út að flugskeytum hafi verið skotið frá kafbáti breska flotans. Líbýska ríkissjónvarpið segir að hersveitir "krossfara" hafi gert árásir á óbreytta borgara í Trípólí auk þess sem olíubirgðastöðvar hafi verið eyðilagðar. Heimildir BBC, breska ríkisútvarpsins, herma hinsvegar að árásir hafi verið gerðar á hernaðarlega mikilvæg skotmörk og herstöðvar. Aðgerðirnar hófust aðeins nokkrum klukkutímum eftir að leiðtogafundi vesturveldanna og nokkurra arabaríkja lauk í París í Frakklandi. Þar var ákveðið hvernig framfylgja ætti ályktun öryggisráðsins, en hún gerir ráð fyrir að öllum nauðsynlegum ráðum megi beita til þess að verja almenning í landinu fyrir hersveitum Gaddafís.
Tengdar fréttir Meðvitaður um hættur hernaðaraðgerðanna "Ég er meðvitaður um hættur hernaðaraðgerða,” sagði Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, í sjónvarpsávarpi í kvöld. Ég vil að ameríska þjóðin viti að beiting valds er ekki fyrsti kostur í stöðunni,“ sagði Barack Obama þegar að hann réttlætti loftárásirnar á Líbíu sem hófust í kvöld. Obama sagði að Gaddafi beitti þjóð sína svo mikillli grimmd að ekki væri hægt að standa hjá og horfa á ofbeldið. 19. mars 2011 22:13 Frakkar senda flugmóðurskip sitt til Líbíu Franskar herþotur skutu fyrstu skotum á líbísk skotmörk í dag. Þá hefur David Cameron, forsætisráðherra Breta, staðfest að breskar herþotur væru tilbúnar til árásar og bandarískir fjölmiðlar segja að hermenn Bandaríkjamanna hafi skotið stýriflaug. 19. mars 2011 20:11 Bandamenn búa sig undir árásir á Gaddafi Um 20 herþotur frá franska flughernum sveima nú í líbískri lofthelgi til að koma í veg fyrir að herlið Gaddafis Líbíuforseta geti ráðist á uppreisnarmenn í borginni Benghazi. Þá eru einnig franskar þotur yfir Líbíu. 19. mars 2011 17:16 Cameron segir ekki hægt að sitja aðgerðarlaus „Það sem við gerum er nauðsynlegt, löglegt og rétt,“ sagði David Cameron forsætisráðherra Bretlands í sjónvarpsávarpi fyrir utan breska forsætisráðherrabústaðinn í dag. 19. mars 2011 22:24 Árásin gæti haft áhrif á olíuverð Markaðir tóku að róast í lok vikunnar eftir stormasama daga vegna jarðskjálftanna og flóðbylgjunnar í Japan. Stærstu sjö iðnríki í heimi, svokölluð G7 ríki, gripu til aðgerða í fyrsta sinn í áratug. Talið er að þær aðgerðir hafi valdið því að japanska jenið féll um 3% gagnvart bandaríkjadal, úrvalsvísitalan í japan hækkaði um 2,7% og heimsmarkaðsverð á olíutunnunni lækkaði um 0,3%. 19. mars 2011 14:50 Herþota skotin niður Herþota var skotin niður í borginni Benghazi í Líbíu í nótt þrátt fyrir að ríkisstjórn Líbíu hafi lýst yfir vopnahléi. 19. mars 2011 09:14 Gaddafi með fjóra blaðamenn í haldi Líbísk stjórnvöld hafa tekið fjóra blaðamenn í gíslingu eftir að árásir bandamanna á Líbíu hófust í dag. Blaðamennirnir starfa allir fyrir Al-Jazeera fréttastofuna. Þeir eru frá Bretlandi, Noregi, Túnis og Márítaníu, að því er Al-Jazeera greinir frá. Blaðamennirnir hafa verið í Líbíu undanfarna daga til þess að greina frá ástandinu þar. 19. mars 2011 22:41 Bandamenn ætla að ráðast á Gaddafi Loftárásir bandamanna á Líbíu geta hafist á hverri stundu en leiðtogar Evrópu, nokkurra Arabaríkja og utanríkisráðherra Bandaríkjanna ákváðu á fundi í París rétt í þessu að hefja hernaðaraðgerðir. 19. mars 2011 15:00 Hrikalegar myndir af árásinni í Líbíu David Cameron, forsætisráðherra Breta, Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, eru í þann mund að hittast til að ræða stöðuna í Líbíu. Síðar í dag munu þau svo hitta leiðtoga fleiri Evrópuríkja og Arabaríkja til að ræða hernaðaraðgerðir. Þær eru hrikalegar myndirnar sem sýna þegar herþota er skotin niður í borginni Benghazi í Líbíu í nótt. Vélin var á vegum uppreisnarmanna og talið er að það hafi verið hersveitir Gaddafis sem skutu vélina niður. 19. mars 2011 11:34 Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Vísbendingar um aukna kjörsókn Innlent Fleiri fréttir Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Sjá meira
Meðvitaður um hættur hernaðaraðgerðanna "Ég er meðvitaður um hættur hernaðaraðgerða,” sagði Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, í sjónvarpsávarpi í kvöld. Ég vil að ameríska þjóðin viti að beiting valds er ekki fyrsti kostur í stöðunni,“ sagði Barack Obama þegar að hann réttlætti loftárásirnar á Líbíu sem hófust í kvöld. Obama sagði að Gaddafi beitti þjóð sína svo mikillli grimmd að ekki væri hægt að standa hjá og horfa á ofbeldið. 19. mars 2011 22:13
Frakkar senda flugmóðurskip sitt til Líbíu Franskar herþotur skutu fyrstu skotum á líbísk skotmörk í dag. Þá hefur David Cameron, forsætisráðherra Breta, staðfest að breskar herþotur væru tilbúnar til árásar og bandarískir fjölmiðlar segja að hermenn Bandaríkjamanna hafi skotið stýriflaug. 19. mars 2011 20:11
Bandamenn búa sig undir árásir á Gaddafi Um 20 herþotur frá franska flughernum sveima nú í líbískri lofthelgi til að koma í veg fyrir að herlið Gaddafis Líbíuforseta geti ráðist á uppreisnarmenn í borginni Benghazi. Þá eru einnig franskar þotur yfir Líbíu. 19. mars 2011 17:16
Cameron segir ekki hægt að sitja aðgerðarlaus „Það sem við gerum er nauðsynlegt, löglegt og rétt,“ sagði David Cameron forsætisráðherra Bretlands í sjónvarpsávarpi fyrir utan breska forsætisráðherrabústaðinn í dag. 19. mars 2011 22:24
Árásin gæti haft áhrif á olíuverð Markaðir tóku að róast í lok vikunnar eftir stormasama daga vegna jarðskjálftanna og flóðbylgjunnar í Japan. Stærstu sjö iðnríki í heimi, svokölluð G7 ríki, gripu til aðgerða í fyrsta sinn í áratug. Talið er að þær aðgerðir hafi valdið því að japanska jenið féll um 3% gagnvart bandaríkjadal, úrvalsvísitalan í japan hækkaði um 2,7% og heimsmarkaðsverð á olíutunnunni lækkaði um 0,3%. 19. mars 2011 14:50
Herþota skotin niður Herþota var skotin niður í borginni Benghazi í Líbíu í nótt þrátt fyrir að ríkisstjórn Líbíu hafi lýst yfir vopnahléi. 19. mars 2011 09:14
Gaddafi með fjóra blaðamenn í haldi Líbísk stjórnvöld hafa tekið fjóra blaðamenn í gíslingu eftir að árásir bandamanna á Líbíu hófust í dag. Blaðamennirnir starfa allir fyrir Al-Jazeera fréttastofuna. Þeir eru frá Bretlandi, Noregi, Túnis og Márítaníu, að því er Al-Jazeera greinir frá. Blaðamennirnir hafa verið í Líbíu undanfarna daga til þess að greina frá ástandinu þar. 19. mars 2011 22:41
Bandamenn ætla að ráðast á Gaddafi Loftárásir bandamanna á Líbíu geta hafist á hverri stundu en leiðtogar Evrópu, nokkurra Arabaríkja og utanríkisráðherra Bandaríkjanna ákváðu á fundi í París rétt í þessu að hefja hernaðaraðgerðir. 19. mars 2011 15:00
Hrikalegar myndir af árásinni í Líbíu David Cameron, forsætisráðherra Breta, Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, eru í þann mund að hittast til að ræða stöðuna í Líbíu. Síðar í dag munu þau svo hitta leiðtoga fleiri Evrópuríkja og Arabaríkja til að ræða hernaðaraðgerðir. Þær eru hrikalegar myndirnar sem sýna þegar herþota er skotin niður í borginni Benghazi í Líbíu í nótt. Vélin var á vegum uppreisnarmanna og talið er að það hafi verið hersveitir Gaddafis sem skutu vélina niður. 19. mars 2011 11:34