Gefandi reynsla að vinna með íslenskum ljósmyndurum 9. desember 2011 22:00 Celina Lunsford Lunsford, sem hélt fyrirlestur hér á landi á dögunum, heldur hér á bókinni Nýrri náttúru. fréttablaðið/Valli „
Þetta er örugglega ekki síðasta verkefnið sem ég vinn með íslenskum ljósmyndurum,“ segir Celina Lunsford ljósmyndafræðingur. Celina var myndritstjóri ljósmyndabókarinnar Ný náttúra sem kom út hjá forlaginu Crymogeu í haust. „Þetta hefur verið afar gefandi reynsla og komið mér í samband við marga íslenska ljósmyndara.“ Bókin kom út í tengslum við sýningu á verkum íslenskra samtímaljósmyndara, Frontiers of Another Nature, sem haldin var í Frankfurt í haust. Þess má geta að hún er að fara í dreifingu í Bandaríkjunum og er að sögn útgefanda verið að skoða möguleika á dreifingu á Norðurlöndum, í Frakkalandi og Bretlandi. „Við höfum fengið mjög góð viðbrögð frá fólki sem við höfum sent bókina.“ Manngerð náttúra er viðfangsefni bókarinnar, hún segir sögu íslenskrar landslagsljósmyndunar en gerir það á óvæntan hátt. Tveimur myndum er stillt saman á hverri opnu, yfirleitt sín úr hvorri áttinni. „Mig langaði til þess að vekja forvitni lesenda. Og þó að myndirnar virki ólíkar í fyrstu, þá er eitthvað í myndbyggingunni sem tengir þær saman, og iðulega í umfjöllunarefni þeirra – þannig tala myndirnar saman.“ Í bókinni eru bæði nýjar og gamlar ljósmyndir og Lunsford segir það hafa komið sér ánægjulega á óvart hversu margir áhugaverðir íslenskir ljósmyndarar séu starfandi. Spurð hvort þeir hafi einhverja sérstöðu segir hún það liðna tíð að þjóðerni setji afgerandi mark á ljósmyndara. „Ljósmyndir fara svo víða í dag, ljósmyndarar geta svo auðveldlega kynnt sér verk kollega sinna í öðrum löndum í gegnum netið að það er af sem áður var þegar auðvelt var að þekkja franskar ljósmyndir frá bandarískum. Hins vegar hafa einstakir ljósmyndarar oft skýr einkenni og mikil áhrif. Ragnar Axelsson, Raxi, hefur til dæmis haft mikil áhrif með myndum sínum af norðurslóðum,“ segir Lunsford að lokum. -sbt
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira