Dómari gagnrýnir ákæruvaldið harðlega í Baugsmálinu 9. desember 2011 15:29 Helgi Magnús Gunnarsson sótti málið.
Óeðlilegur og óafsakanlegur dráttur sem varð á málsmeðferð í skattahluta Baugsmálsins hafði áhrif á þann dóm sem féll í dag yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Kristínu Jóhannesdóttur og Tryggva Jónssyni. Málið má rekja allt aftur til ársins 2002, eða níu ár aftur í tímann. Ríkissjóður þarf að greiða helminginn af málsvarnarlaunum verjenda hinna dæmdu. Þetta kemur fram í niðurstöðu fjölskipaðs dóms Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem ákæruvaldið er gagnrýnt harðlega fyrir drátt málsins. Fyrir vikið er ákvörðun um refsingu frestað og fellur hún niður að einu ári liðnu. Niðurstaðan hefur engin áhrif á stjórnarsetu þremenninganna. Saga Baugsmálsins er orðin löng og sviptingasöm eins og segir í dómsorði. Þannig var húsleit ríkislögreglustjóra framkvæmd árið 2002 hjá Baugi. Sú húsleit varð til þess að þremenningarnir voru ákærðir fyrir auðgunarbrot, tollalagabrot og brot gegn hlutafélögum sumarið 2005. Ákæran taldi alls fjörutíu liði en 32 var vísað frá í Hæstarétti sama ár. Jón Ásgeir hlaut þriggja mánaða skilorðsbundna refsingu fyrir brot sín. Tryggvi hlaut tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi. Þetta mál, sem nú um ræðir, var höfðað árið 2008. Í úrskurðinum kemur fram að dómararnir telji að dráttur málsins brjóti í bága við stjórnarskrá Íslands og mannréttindasáttmála Evrópu. Þá segir ennfremur í niðurstöðunni að skjöl, sem ákæruvaldið lagði fyrir dóm, hafi verið í þúsundatali. Ákæruvaldið studdist aðeins við örlítið brot af þeim og hafði ekki fyrir því að fjarlægja óþörf skjöl úr bunkanum, sem olli miklum töfum og umtalsverðri fyrirhöfn. Því töldu dómararnir eðlilegast að ríkissjóður greiði helminginn af málsvarnarlaunum hinna dæmdu. Skattgreiðendur þurfa því að greiða níu milljónir króna til þess að standa straum af lögfræðikostnaði Jóns Ásgeirs, Tryggva og Kristínar. Það var Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari, sem sótti málið.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira