Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur Erla Hlynsdóttir skrifar 9. desember 2011 18:28
Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkur landsins og fengi um 50% fylgi ef gengið yrði til kosninga í dag, samkvæmt könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Frá síðustu Alþingiskosningum hafa aldrei færri tekið afstöðu til þess hvaða lista þeir myndu kjósa. Hringt var í átta hundruð manns, sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá, dagana sjöunda og áttunda desember. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag? Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar myndu tæp fimmtíu prósent kjósa Sjálfstæðisflokkinn, um sautján prósent myndu kjósa Samfylkinguna og svipaður fjöldi segist myndu kjósa Framsóknarflokkinn. Þá myndu rúm þrettán prósent kjósa Vinstri græn og tæp þrjú prósent kjósa Hreyfinguna. Þessu niðurstöðum þarf þó að taka með ákveðnum fyrirvara vegna þess hversu fáir tóku afstöðu, eða aðeins tæp fjörutíuogfjögur prósent. Frá síðustu Alþingiskosningum hafa aldrei færri tekið afstöðu til þess hvaða lista þeir myndu kjósa, í könnunum Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Fyrsta árið eftir kosningar tóku um sextíu til sextíuogfimm prósent afstöðu. Þá fór hlutfall þeirra sem ekki tóku afstöðu minnkandi og nær lágmarki nú. Stjórnmálafræðingar hafa túlkað slíka þróun sem vísbendingu um minnkandi trú fólks á flokkunum. Í því sambandi ber að skoða að samkvæmt niðurstöðunum nú segjast aðeins þrjú prósent munu kjósa annan flokk en þá sem hér á undan eru taldir, en ljóst hefur verið um nokkra hríð að fólk úr Besta flokknum ætlar ásamt Guðmundi Steingrímssyni að bjóða fram á landsvísu fyrir næstu kosningar. Þegar spurt er hvaða lista fólk myndi kjósa segjast sextán prósent ætla að skila auðu, tuttutuogtvö prósent eru óákveðnir og tuttutuogtveir svara ekki spurningunni um hvaða flokk þeir myndu kjósa. Ef þátttakandi tók ekki afstöðu var reynt að fá nákvæmari niðurstöður og því spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var að lokum spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern annan flokk? Endanlegar niðurstöður um fylgi flokkanna miðast við uppsöfnuð svör eftir þessa síðustu spurningu.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira