Erlent

Fyrstu fjöldamótmælin í tíu ár

Hátt í fjögur hundruð mótmælendur voru handteknir í Alsír á laugardag.mynd/Ap
Hátt í fjögur hundruð mótmælendur voru handteknir í Alsír á laugardag.mynd/Ap

Alsír, AP Hátt í þrjátíu þúsund óeirðalögreglumenn stóðu vaktina á götum Algeirsborgar á laugardag og handtóku hátt í fjögur hundruð mótmælendur. Um tíu þúsund manns voru á götum úti og hunsuðu þar með bann stjórnvalda við mótmælum. Þeir hrópuðu: „Ekki meira lögregluríki!" og héldu á skiltum sem á stóð: „Skilið okkur Alsír til baka".

Að sögn stjórnarandstöðunnar í Alsír sýndu mótmælendurnir mikið hugrekki því engin fjöldamótmæli hafa verið þar í landi undanfarin tíu ár. Mikil fátækt og atvinnuleysi er í Alsír. Önnur mótmæli eru fyrirhugð þar næstkomandi laugardag.

Mótmælin í Túnis og Egyptalandi sem urðu til þess að leiðtogar landanna hrökkluðust frá völdum hafa hvatt almenning í Alsír til dáða. Sömu sögu er að segja af almenningi í Jemen, þar sem nokkur þúsund manns mótmæltu stjórnvöldum þriðja daginn í röð í gær. Nokkrir mótmælendur særðust í átökum við lögreglu og 23 voru handteknir.

Þá hefur stjórnarandstaðan í Íran hvatt til mótmæla í höfuðborginni Teheran í dag, þrátt fyrir aðvaranir stjórnvalda um að hart verði tekið á slíkri hegðun. Yfir fjörutíu þúsund hafa skráð sig til þátttöku í mótmælunum á Facebook. - fb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×